25.09.2009
Nýja Kaupþing kærir forsvarsmenn Exista
Nýi Kaupþing banki hefur kært forsvarsmenn Exista til sérstaks saksóknara vegna sölu á hlut Exista í Bakkavör Group þann 11. september 2009. Það er mat Nýja Kaupþings að forsvarsmenn Exista hafi fyrir hönd félagsins brotið gegn ákvæðum 250. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940 með sölunni. Nýja Kaupþing mun jafnframt leita viðeigandi einkaréttarlegra úrræða samhliða kærunni til saksóknara.
Þá hefur Nýja Kaupþing kært til sérstaks saksóknara forsvarsmenn Exista og þá starfsmenn Deloitte og Logos lögmannsþjónustu sem önnuðust tilkynningu til hlutafjárskrár vegna hlutafjáraukningar Exista í desember 2008. Að mati bankans fer háttsemi viðkomandi aðila gegn 153. og 154. gr. laga um hlutafélög nr. 2/1995.