20.05.2009

Nýja Kaupþing lækk­ar vexti í fimmta sinn á ár­inu

Nýja Kaupþing hefur ákveðið að lækka útlánsvexti um 1 til 1,5 prósentustig frá og með 21. maí. Innlánsvextir lækka á bilinu 0,75- 3 prósentustig. Lækkunin tekur bæði til verðtryggðra og óverðtryggðra inn- og útlána.

Þetta er í fimmta sinn sem Nýja Kaupþing lækkar vexti á árinu. Bankinn vill með áframhaldandi vaxtalækkunarferli koma til móts við þau heimili og fyrirtæki í landinu sem berjast við háa greiðslubyrði af skuldum sínum.

Áhrif vaxtalækkana

Yfirdráttarvextir fyrirtækja hafa á árinu lækkað úr 24,55% í 15,75% eða um 8,8 prósentustig og vextir óverðtryggðra skuldabréfa hafa lækkað um 10,4 prósentustig. Vaxtakostnaður á ári af fimm milljón króna yfirdráttarheimild fyrirtækis hefur þannig lækkað um 440.000 frá áramótum.

Innlánsvextir veltureikninga fyrirtækja hafa hins vegar á sama tímabili lækkað minna en útlánsvextir eða um 5,2 prósentustig.

Innlánseigendur beina sjónum sínum í æ ríkari mæli að nýjum ávöxtunarleiðum eins og Ríkisvíxlasjóði. Ríkisvíxlasjóður er verðbréfasjóður rekinn af Rekstrarfélagi Kaupþings banka hf. og samanstendur af víxlum og stuttum skuldabréfum útgefnum af eða með ábyrgð íslenska ríkisins. Að auki er sjóðnum heimilt að fjárfesta allt að 10% í innlánum. Sjóðurinn hentar vel fyrir þá sem vilja ávaxta fé sitt til þriggja mánaða eða lengur og halda sveiflum í ávöxtun í lágmarki. Þá er hægt að innleysa úr sjóðnum með eins dags fyrirvara. Frá stofnun sjóðsins 2. febrúar 2009 til 13. maí 2009 hefur gengi hans hækkað um 3,7%.
Frá því sjóðurinn var stofnaður fyrir um þremur mánuðum hafa um tvö þúsund einstaklingar, lífeyrissjóðir og fagfjárfestar fjárfest í sjóðnum, samtals fyrir á sjöunda milljarð króna.

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
20. október 2026

Við þökkum Óttalausu stúlkunni fyrir komuna!

Óhætt er að segja að koma Óttalausu stúlkunnar (e. Fearless girl) hingað til lands hafi vakið athygli. Styttan af óttalausu stúlkunni, eftir listakonuna Kristen Visbal, var upphaflega sett upp í New York af State Street Investment Management í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna árið 2017.

Lesa meira
15. október 2026

Arion banki á Arctic Circle

Arion banki tók þátt í Arctic Circle Assembly 2026 sem fór fram í Hörpu og Reykjavík EDITION dagana 8.-10. október. Í ár sóttu ráðstefnuna yfir 2.300 þátttakendur frá meira en 70 löndum og komu um 700 fyrirlesarar fram á yfir 200 málstofum.

Lesa meira
14. október 2026

Óttalausa stúlkan kemur til Íslands

Hin heimsþekkta stytta Óttalausa stúlkan (e. Fearless Girl), táknmynd seiglu og hugrekkis um allan heim, er á leið til Íslands. Tilefnið er sá árangur sem náðst hefur með Konur fjárfestum átaksverkefni Arion banka á undanförnum árum.  

Lesa meira