07.05.2009
Nýja Kaupþing lækkar vexti um 2,5% til 4%
Nýja Kaupþing fagnar vaxtalækkun Seðlabanka Íslands. Þetta er mikilvægt skref í að lækka vaxtabyrði hjá heimilum og fyrirtækjum í landinu.
Nýja Kaupþing lækkar í kjölfarið óverðtryggða innlánsvexti um 2,5% til 4% og útlánsvexti um 3% til 4% frá og með 11. maí. Með þessari vaxtalækkun vill bankinn koma til móts við kröfur um auknar vaxtalækkanir í þjóðfélaginu.
Bankinn vill enn fremur vekja athygli á margvíslegum úrræðum fyrir heimili og fyrirtæki í greiðsluerfiðleikum.
Meðal úrræða sem bankinn býður upp á til að stuðla að lausn á greiðsluvanda eru:
Ráðgjöf varðandi neyslumynstur o.fl.
Sérstök úrræði vegna sölutregðu fasteigna
Skilmálabreyting eða lenging lána
Greiðslujöfnun verðtryggðra húsnæðislána og annarra verðtryggðra lána með fasteignaveði
Frestun greiðslu afborgana verðtryggðra húsnæðislána í allt að 12 mánuði – vextir greiðast áfram á gjalddögum
Frestun greiðslu afborgana og vaxta verðtryggðra húsnæðislána í allt að 12 mánuði – vextir í greiðslufresti bætast við höfuðstól lánsins.
Tímabundin frestun afborgana höfuðstóls erlendra húsnæðislána í allt að 4 – 6 mánuði - vextir greiddir á gjalddögum
• Tímabundin frestun afborgana höfuðstóls og vaxtagreiðslna erlendra húsnæðislána í allt að 3 mánuði – vextir í greiðslufresti leggjast við höfuðstól lánsins
Greiðslujöfnun erlendra húsnæðislána