19.06.2009
Nýja Kaupþing og Lífeyrissjóður verkfræðinga semja um umsýslu á útlánum
Nýja Kaupþing og Lífeyrissjóður verkfræðinga undirrituðu í dag samning um að bankinn sjái um alla umsýslu vegna útlána lífeyrissjóðsins til sjóðsfélaga.
Samningurinn felur í sér að bankinn þjónustar ný og eldri útlán lífeyrissjóðsins og veitir sjóðsfélögum faglega ráðgjöf og upplýsingar um lán og aðra þjónustu. Þá mun bankinn að auki bjóða þeim sjóðsfélögum sem það þurfa upp á greiðsluerfiðleikaúrræði.
Starfsmenn í aðalútbúi Nýja Kaupþings að Laugavegi 120 munu alfarið sjá um að þjónusta lífeyrissjóðslánin.
Jón Emil Magnússon útibússtjóri aðalútibús Nýja Kaupþings:
,,Það er afar ánægjulegt að fá svo sterkan viðskiptavin eins og Lífeyrissjóð verkfræðinga í viðskipti og ég vona að samstarfið verði gott og farsælt."
Stefán Halldórsson framkvæmdastjóri Lífeyrissjóðs verkfræðinga:
,,Lífeyrissjóðurinn leggur mikla áherslu á góða þjónustu og umsýslu vegna sjóðsfélagalána og væntir góðs samstarfs við Nýja Kaupþing á þessu sviði."