07.11.2012
Nýjung: Arion banki býður lægri afborganir íbúðarlána við töku fæðingarorlofs
Nú býður Arion banki viðskiptavinum sínum sem eru í fæðingarorlofi og með íbúðarlán hjá bankanum að breyta greiðslutilhögun lánsins í allt að níu mánuði eða í þann tíma sem á töku fæðingarorlofs stendur.
Oft er það svo að við töku fæðingarorlofs þá lækka ráðstöfunartekjur fjölskyldna. Til að koma til móts við slíkar aðstæður hefur Arion banki tekið upp þá nýjung að bjóða viðskiptavinum að lækka mánaðarlegar greiðslur íbúðalána um allt að helming á meðan á töku fæðingarorlofs stendur.
Úrræðið felur þannig í sér lægri greiðslubyrði og leggst það sem ógreitt er við höfuðstól lánsins. Skilyrði er að íbúðarlánið sé í skilum. Hafi taka fæðingarorlofs þegar hafist þá er samt sem áður hægt að fá afslátt af ógreiddum gjalddögum það sem eftir er af fæðingarorlofinu. Eina sem viðskiptvinir þurfa að gera til að falla undir úrræðið er að sýna fram á töku fæðingarorlofs með greiðsluyfirliti frá Fæðingarorlofssjóði.