22.10.2008

Nýr Kaupþing banki hf. stofn­aður um inn­lenda banka­starf­semi

Nýr Kaupþing banki hf. hefur verið stofnaður um innlenda bankastarfsemi Kaupþings banka hf.

Nýi bankinn tekur yfir innlendar eignir Kaupþings til þess að tryggja eðlilega bankastarfsemi og öryggi innstæðna á Íslandi. Alþjóðleg starfsemi Kaupþings er skilin frá. Öll útibú, þjónustuver, hraðbankar og netbanki Kaupþings verða opin.

  • Nýi bankinn tekur yfir innlendar eignir Kaupþings til þess að tryggja eðlilega bankastarfsemi og öryggi innstæðna á Íslandi

  • Alþjóðleg starfsemi Kaupþings er skilin frá

  • Öll útibú, þjónustuver, hraðbankar og netbanki Kaupþings verða opin

Þann 9. október 2008 ákvað Fjármálaeftirlitið að nýta heimild Alþingis með vísan til 100 gr. a laga nr. 161/2002, sbr. lög nr. 125/2008, vegna sérstakra aðstæðna á fjármálamarkaði, til að taka yfir rekstur Kaupþings banka hf.

Fjármálaeftirlitið hefur nú tekið ákvörðun um að flytja hluta af starfsemi Kaupþings banka hf. til nýs banka sem stofnaður hefur verið og er að fullu í eigu íslenska ríkisins. Með ákvörðuninni er tryggð áframhaldandi bankastarfsemi fyrir heimilin og fyrirtækin í landinu.

Í ákvörðuninni felst m.a. að nýi bankinn yfirtekur allar innstæðuskuldbindingar í bankanum á Íslandi og sömuleiðis stærstan hluta eigna bankans sem tengjast íslenskri starfsemi s.s. lán og aðrar kröfur.

Á næstu 90 dögum mun fara fram mat óháðs aðila á verðgildi eigna og skulda og lokauppgjör. Eigið fé nýja bankans verður 75 milljarðar króna sem ríkið leggur fram. Stærð efnahagsreiknings hins nýja banka verður um 700 milljarðar króna.

Finnur Sveinbjörnsson hefur verið ráðinn bankastjóri. Lykilstjórnendur hins nýja banka munu sjá um kynningu á starfsemi hans en heiti hans verður Nýi Kaupþing banki hf.

Ákvörðunina má lesa á vef FME.

Nánari upplýsingar veitir Jónas Sigurgeirsson í síma 444 6112.

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
20. október 2026

Við þökkum Óttalausu stúlkunni fyrir komuna!

Óhætt er að segja að koma Óttalausu stúlkunnar (e. Fearless girl) hingað til lands hafi vakið athygli. Styttan af óttalausu stúlkunni, eftir listakonuna Kristen Visbal, var upphaflega sett upp í New York af State Street Investment Management í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna árið 2017.

Lesa meira
15. október 2026

Arion banki á Arctic Circle

Arion banki tók þátt í Arctic Circle Assembly 2026 sem fór fram í Hörpu og Reykjavík EDITION dagana 8.-10. október. Í ár sóttu ráðstefnuna yfir 2.300 þátttakendur frá meira en 70 löndum og komu um 700 fyrirlesarar fram á yfir 200 málstofum.

Lesa meira
14. október 2026

Óttalausa stúlkan kemur til Íslands

Hin heimsþekkta stytta Óttalausa stúlkan (e. Fearless Girl), táknmynd seiglu og hugrekkis um allan heim, er á leið til Íslands. Tilefnið er sá árangur sem náðst hefur með Konur fjárfestum átaksverkefni Arion banka á undanförnum árum.  

Lesa meira