31.01.2014

Nýr samningur um milli­banka­þjónustu

Þann 1. febrúar tekur gildi nýr samningur banka og sparisjóða um millibankaþjónustu en það telst vera þjónusta sem veitt er þegar bankar og sparisjóðir afgreiða viðskiptavini annarra banka og sparisjóða. Þetta á til að mynda við þegar tekið er út af reikning í öðrum banka en viðskiptabanka reikningseiganda og þegar reikningur er greiddur í öðrum banka en þeim sem gefur út greiðsluseðilinn. Með þessum samningi fellur úr gildi eldri samningur og gjald vegna millibankaþjónustu sem verið hefur óbreytt frá árinu 1997.

Breytingin er gerð til þess að koma til móts við athugasemdir Samkeppniseftirlitsins við fyrirkomulag gjaldtöku vegna þessarar þjónustu, en fram til þessa hefur gjald vegna millibankaþjónustu verið samræmt milli banka og sparisjóða og innheimt af banka eða sparisjóði viðskiptamanns.

Samningurinn felur í sér að hver og einn banki eða sparisjóður ákvarðar einhliða þau gjöld sem hann innheimtir vegna millibankaþjónustu. Þegar viðskiptavinur fjármálafyrirtækis sækir sér þjónustu í öðrum banka eða sparisjóði en sínum eigin þá miðast kostnaðurinn við verðskrá þess sem veitir þjónustuna. Bönkum og sparisjóðum er þó heimilt að taka þátt í að greiða fyrir millibankaþjónustu fyrir hönd sinna viðskiptavina.

Arion banki mun frá og með 1. febrúar hækka úttektargjald af debetkorti í hraðbanka fyrir aðra en viðskiptavini bankans úr 110 krónum í 155 krónur. Áfram verður úttektin viðskiptavinum Arion banka að kostnaðarlausu. Frekari gjaldskrárhækkanir liggja ekki fyrir vegna samnings um millibankaþjónustu en Arion banki mun að óbreyttu ekki taka þátt í að greiða fyrir millibankaþjónustu annarra viðskiptabanka og sparisjóða.

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
20. október 2026

Við þökkum Óttalausu stúlkunni fyrir komuna!

Óhætt er að segja að koma Óttalausu stúlkunnar (e. Fearless girl) hingað til lands hafi vakið athygli. Styttan af óttalausu stúlkunni, eftir listakonuna Kristen Visbal, var upphaflega sett upp í New York af State Street Investment Management í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna árið 2017.

Lesa meira
15. október 2026

Arion banki á Arctic Circle

Arion banki tók þátt í Arctic Circle Assembly 2026 sem fór fram í Hörpu og Reykjavík EDITION dagana 8.-10. október. Í ár sóttu ráðstefnuna yfir 2.300 þátttakendur frá meira en 70 löndum og komu um 700 fyrirlesarar fram á yfir 200 málstofum.

Lesa meira
14. október 2026

Óttalausa stúlkan kemur til Íslands

Hin heimsþekkta stytta Óttalausa stúlkan (e. Fearless Girl), táknmynd seiglu og hugrekkis um allan heim, er á leið til Íslands. Tilefnið er sá árangur sem náðst hefur með Konur fjárfestum átaksverkefni Arion banka á undanförnum árum.  

Lesa meira