30.12.2009
Nýr sjóður - Ríkisskuldabréf verðtryggð
Áhugi fjárfesta á verðtryggðum ríkisskuldabréfum hefur verið mikill undanfarið en á tæpum mánuði hefur verið fjárfest í sjóðnum Ríkisskuldabréf verðtryggð fyrir rúmlega einn og hálfan milljarð króna.
Sjóðurinn var stofnaður í lok nóvember og er ætlað að koma til móts við þarfir fjárfesta sem vilja fjárfesta í verðtryggðum skuldabréfum með ábyrgð íslenska ríkisins. Um er að ræða verðbréfasjóð með mjög skýra og afmarkaða fjárfestingarstefnu en þetta er eini ríkisskuldabréfasjóðurinn sem hefur þá stefnu að fjárfesta einungis í verðtryggðum ríkisskuldabréfum, ólíkt þeim sjóðum sem fyrir eru á markaðnum, en þeir fjárfesta flestir einnig í óverðtryggðum ríkisskuldabréfum.
Sögulega hefur verðbólga verið mikil á Íslandi og því hafa verðtryggð ríkisskuldabréf verið góður fjárfestingarkostur. Þessi sjóður er:
Fyrir þá sem kjósa verðtryggingu
Fjárfesting í ríkistryggðum eignum
Fyrir þá sem vilja fjárfesta í 3 ár eða lengur
Enginn binditími
Fyrir þá sem þola umtalsverðar sveiflur í ávöxtun
Til loka janúar nk. verður gefinn 100% afsláttur af mismun á kaup- og sölugengi.
Verðbréfaþjónusta Arion banka er söluaðili sjóða Stefnis. Nánari upplýsingar um sjóðinn veitir starfsfólk verðbréfaþjónustunnar í síma 444 7000.