21.11.2014

Nýr stjórnar­maður kjör­inn í stjórn Arion banka

Hluthafafundur Arion banka fór fram 20. nóvember í höfuðstöðvum bankans, Borgartúni 19. Á fundinum var kjörinn nýr stjórnarmaður, Brynjólfur Bjarnason, sem kemur inn í stjórn í stað Björgvins Skúla Sigurðssonar.

Stjórn Arion banka skipa nú: Monica Caneman, formaður stjórnar, Guðrún Johnsen, varaformaður stjórnar, Benedikt Olgeirsson, Brynjólfur Bjarnason, Kirstín Þ. Flygenring, Måns Höglund og Þóra Hallgrímsdóttir.

Brynjólfur Bjarnason

Brynjólfur var framkvæmdastjóri Framtakssjóðs Íslands frá 2012 til 2014. Á árunum 2007 til 2010 starfaði hann sem forstjóri Skipta. Brynjólfur var forstjóri Símans frá 2002 til 2007. Hann starfaði sem forstjóri Granda hf. frá 1984 til 2002. Frá 1976 til 1983 starfaði Brynjólfur sem framkvæmdastjóri AB bókaútgáfu. Brynjólfur var auk þess forstöðumaður hagdeildar VSÍ á árunum 1973 til 1976. Brynjólfur hefur mikla reynslu af stjórnarsetu og hefur setið í fjölmörgum stjórnum í gegnum tíðina og gegnt stjórnarformennsku í nokkrum þeirra. Brynjólfur hefur setið í stjórn Genís síðan 2011 og í stjórn Leikritunarsjóðs Leikfélags Reykjavíkur síðan 2009.

Brynjólfur útskrifaðist með MBA-gráðu frá University of Minnesota árið 1973. Hann útskrifaðist með cand.oecon.-gráðu í viðskiptafræði frá Háskóla Íslands árið 1971.

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
20. október 2026

Við þökkum Óttalausu stúlkunni fyrir komuna!

Óhætt er að segja að koma Óttalausu stúlkunnar (e. Fearless girl) hingað til lands hafi vakið athygli. Styttan af óttalausu stúlkunni, eftir listakonuna Kristen Visbal, var upphaflega sett upp í New York af State Street Investment Management í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna árið 2017.

Lesa meira
15. október 2026

Arion banki á Arctic Circle

Arion banki tók þátt í Arctic Circle Assembly 2026 sem fór fram í Hörpu og Reykjavík EDITION dagana 8.-10. október. Í ár sóttu ráðstefnuna yfir 2.300 þátttakendur frá meira en 70 löndum og komu um 700 fyrirlesarar fram á yfir 200 málstofum.

Lesa meira
14. október 2026

Óttalausa stúlkan kemur til Íslands

Hin heimsþekkta stytta Óttalausa stúlkan (e. Fearless Girl), táknmynd seiglu og hugrekkis um allan heim, er á leið til Íslands. Tilefnið er sá árangur sem náðst hefur með Konur fjárfestum átaksverkefni Arion banka á undanförnum árum.  

Lesa meira