04.06.2012
Nýr umboðsmaður viðskiptavina Arion banka
Helgi G. Björnsson hefur tekið við hlutverki umboðsmanns viðskiptavina Arion banka.
Helgi hefur frá miðju ári 2010 starfað með umboðsmanni viðskiptavina og þekkir því vel til þessara mikilvægu verkefna. Helgi er iðnrekstrarfræðingur að mennt og hefur langa reynslu innan bankans.
Áður en hann hóf störf með umboðsmanni hafði hann starfað í 17 ár sem útibússtjóri og aðstoðarútibússtjóri.