04.06.2012
Nýr útibússtjóri Vesturbæjarútibús Arion banka
Brynhildur Georgsdóttir hefur tekið við starfi útibússtjóra Arion banka í Vesturbæjarútibúi.
Auk þess að bera ábyrgð á rekstri Vestubæjarútibús mun Brynhildur taka virkan þátt í uppbyggingu á miðbæjarsvæði bankans. Brynhildur er lögfræðingur frá Háskóla Íslands og með MBA gráðu frá sama skóla.
Brynhildur gegndi starfi umboðsmanns viðskiptavina Arion banka frá árinu 2009.