21.11.2008
Nýrra ávöxtunartalna að vænta um mánaðamót
Unnið er að útreikningi á nýju gengi fjárfestingarleiða lífeyris- og séreignarsjóða í vörslu Kaupþings svo hægt verði að birta ávöxtunartölur í kjölfar kreppu á fjármálamarkaði. Um leið og línur skýrast verður niðurstaðan kynnt með fréttatilkynningu á vefsíðu og í fjölmiðlum. Í framhaldi verða yfirlit send til sjóðfélaga. Stefnt er að því að uppgjör liggi fyrir um mánaðamót.