10.06.2015

Ný­sköp­unar­keppni grunn­skóla­nem­enda - sam­an­tekt úr vinnu­smiðju og loka­hófi

Nýverið lauk Nýsköpunarkeppni grunnskólanemenda og var Arion banki aðalbakhjarl keppninnar en um 3000 hugmyndir bárust frá um 2000 nemendum.

Í ár var einni vinnusmiðju bætt við þar sem farið var í fjárhagslegu hlið þess að gera hugmynd að vöru og verðmætum. Vinnusmiðjan var haldin í Arion banka Borgartúni 19 og var dagskráin skemmtileg. Það verður að segjast eins og er að í fyrstu leist krökkunum ekkert sérlega vel á þennan dag tileinkuðum fjármálum en þau gengu út eftir daginn glöð í bragði og uppfull af fróðleik og pælingum um hvernig þau geta fengið tekjur af sinni hugmynd.

Breki Karlsson, forstöðumaður Stofnunar um fjármálalæsi var með almenna fjármálafræðslu, frumkvöðlarnir Stefán Atli Thoroddsen hjá Crow Bar og Helga Árnadóttir framkvæmdastjóri Tulipop kynntu sínar vörur. Stefán Atli sagði þeim frá prótein súkkulaðinu sem inniheldur krybbuhveiti (skordýrið mikið rétt) sem þeir félagar hafa þróað og eru að hefja framleiðslu á og Helga fór yfir sögu Tulipop og samstarf við Arion banka með Spariland. Að lokum leiddi Haraldur Hugosson hjá Klak Innovit vinnustofu þar sem krakkarnir settu sína hugmynd upp eftir viðskiptalíkani (Business Model Canvas).

Frábær dagur í alla staði og hlökkum við mikið til að koma að keppninni á næstu árum.

Hér fyrir neðan má sjá skemmtilegt myndband sem var tekið saman um keppnina.

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
20. október 2026

Við þökkum Óttalausu stúlkunni fyrir komuna!

Óhætt er að segja að koma Óttalausu stúlkunnar (e. Fearless girl) hingað til lands hafi vakið athygli. Styttan af óttalausu stúlkunni, eftir listakonuna Kristen Visbal, var upphaflega sett upp í New York af State Street Investment Management í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna árið 2017.

Lesa meira
15. október 2026

Arion banki á Arctic Circle

Arion banki tók þátt í Arctic Circle Assembly 2026 sem fór fram í Hörpu og Reykjavík EDITION dagana 8.-10. október. Í ár sóttu ráðstefnuna yfir 2.300 þátttakendur frá meira en 70 löndum og komu um 700 fyrirlesarar fram á yfir 200 málstofum.

Lesa meira
14. október 2026

Óttalausa stúlkan kemur til Íslands

Hin heimsþekkta stytta Óttalausa stúlkan (e. Fearless Girl), táknmynd seiglu og hugrekkis um allan heim, er á leið til Íslands. Tilefnið er sá árangur sem náðst hefur með Konur fjárfestum átaksverkefni Arion banka á undanförnum árum.  

Lesa meira