21.08.2012

Nýtt snjallsíma­for­rit frá Arion banka

Arion banki hefur sett í loftið nýtt snjallsímaforrit (app) sem gerir viðskiptavinum bankans kleift að fylgjast með fjármálum sínum í símanum með einum smelli og án innskráningar. Appið er viðbót við farsímavefinn sem hefur verið í boði síðan í nóvember 2011 og gerir notendum kleift að vera ávallt tengdir við bankann sinn.

Með Arion banka appinu geta viðskiptavinir bankans fylgst með færslum sínum og stöðu reikninga og korta án þess að þurfa að skrá sig inn í netbankann. Þar að auki er hægt að sjá yfirlit yfir ógreiddar kröfur, fá sendar tilkynningar um greiðslur inn á reikninga og fá senda aðvörun þegar reikningur hefur farið á FIT (úttekt án heimildar) svo fátt eitt sé nefnt.

Appið veitir yfirlitsheimild hjá viðkomandi viðskiptavini en til að hann geti millifært á milli reikninga í appinu þarf hann að skrá sig inn með hefðbundinni auðkenningu. Þetta þarf einungis að gera ef framkvæma á fjárhagslegar færslur.

Appið virkar í nýlegum Apple og Android símum og það þarf að setja sérstaklega upp á símanum. Það er gert eins og með önnur hefðbundin öpp í gegnum Appstore hjá Apple eða í Google Play fyrir Android. Appið virkar fyrir alla þá sem eru með netbanka Arion banka, hvort sem er einstaklinga eða fyrirtæki.

Almennar upplýsingar um appið er að finna á http://www.arionbanki.is/app.

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
20. október 2026

Við þökkum Óttalausu stúlkunni fyrir komuna!

Óhætt er að segja að koma Óttalausu stúlkunnar (e. Fearless girl) hingað til lands hafi vakið athygli. Styttan af óttalausu stúlkunni, eftir listakonuna Kristen Visbal, var upphaflega sett upp í New York af State Street Investment Management í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna árið 2017.

Lesa meira
15. október 2026

Arion banki á Arctic Circle

Arion banki tók þátt í Arctic Circle Assembly 2026 sem fór fram í Hörpu og Reykjavík EDITION dagana 8.-10. október. Í ár sóttu ráðstefnuna yfir 2.300 þátttakendur frá meira en 70 löndum og komu um 700 fyrirlesarar fram á yfir 200 málstofum.

Lesa meira
14. október 2026

Óttalausa stúlkan kemur til Íslands

Hin heimsþekkta stytta Óttalausa stúlkan (e. Fearless Girl), táknmynd seiglu og hugrekkis um allan heim, er á leið til Íslands. Tilefnið er sá árangur sem náðst hefur með Konur fjárfestum átaksverkefni Arion banka á undanförnum árum.  

Lesa meira