12.06.2014

Nýtt úti­bú Arion banka opn­að í Borgar­túni

Í morgun opnaði Arion banki nýtt og glæsilegt útibú að Borgartúni 18. Þar kemur saman starfsfólk Arion banka sem áður starfaði í útibúum bankans við Hlemm og í Austurstræti.

Nýja útibúið er hannað frá grunni út frá því hvernig einstaklingar og fyrirtæki kjósa að nýta sér fjármálaþjónustu í dag. Þar sem kröfur um fjölbreytta þjónustu og gæði persónulegrar ráðgjafar í brennipunkti.

Lögð er áhersla á að nýta nýjustu tækni í bankaþjónustu með nýrri kynslóð hraðbanka sem bjóða upp á fjölbreyttari aðgerðir en áður, s.s. innlagnir og greiðslu reikninga. Hraðbankarnir eru aðgengilegir viðskiptavinum umfram hefðbundinn þjónustutíma eða frá 7:00 á morgnana til 20:00 á kvöldin, alla daga vikunnar.

Persónuleg ráðgjöf og þjónusta er efld í nýja útibúinu og er fleira starfsfólk en áður til taks til að sinna sérhæfðri fjármálaþjónustu s.s. ráðgjöf á sviði sparnaðar, lífeyrismála og fjármögnunar íbúðarhúsnæðis.

Nú þegar útibú Arion banka við Borgartún 18 hefur tekið til starfa, hefur útibúi bankans við Austurstræti verið lokað en boðið verður upp á þjónustu gjaldkera í útibúinu við Hlemm fram til 8. ágúst.

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
20. október 2026

Við þökkum Óttalausu stúlkunni fyrir komuna!

Óhætt er að segja að koma Óttalausu stúlkunnar (e. Fearless girl) hingað til lands hafi vakið athygli. Styttan af óttalausu stúlkunni, eftir listakonuna Kristen Visbal, var upphaflega sett upp í New York af State Street Investment Management í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna árið 2017.

Lesa meira
15. október 2026

Arion banki á Arctic Circle

Arion banki tók þátt í Arctic Circle Assembly 2026 sem fór fram í Hörpu og Reykjavík EDITION dagana 8.-10. október. Í ár sóttu ráðstefnuna yfir 2.300 þátttakendur frá meira en 70 löndum og komu um 700 fyrirlesarar fram á yfir 200 málstofum.

Lesa meira
14. október 2026

Óttalausa stúlkan kemur til Íslands

Hin heimsþekkta stytta Óttalausa stúlkan (e. Fearless Girl), táknmynd seiglu og hugrekkis um allan heim, er á leið til Íslands. Tilefnið er sá árangur sem náðst hefur með Konur fjárfestum átaksverkefni Arion banka á undanförnum árum.  

Lesa meira