01.03.2011

Nýtt úti­bú Arion banka opn­ar á Höfða

Arion banki opnar nýtt útibú bankans að Höfða miðvikudaginn 23. mars. Útibú Arion banka að Suðurlandsbraut, í Árbæ og í Grafarvogi sameinast í nýju útibúi bankans á Höfða, sama húsnæði og Húsgagnahöllin er til húsa í við Bíldshöfða.

Hið nýja útibú verður eitt stærsta og glæsilegasta útibú bankans og verður þar boðið upp á alhliða fjármálaþjónustu þar sem áhersla er lögð á faglega og persónulega þjónustu. Aðstaðan í Höfðaútibúi er öll hin besta og næg bílastæði eru á staðnum.

Síðasti afgreiðsludagur útibúanna að Suðurlandsbraut, í Árbæ og í Grafarvogi verður því 22. mars. Öll bankaviðskipti verða færð í nýja útibúið og munu banka- og reikningsnúmer haldast óbreytt ásamt debet- og kreditkortum.

Viðskiptavinir geta eftir sem áður sótt daglega þjónustu í hvaða útibúi bankans sem er og í gegnum Þjónustuver Arion banka.

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
20. október 2026

Við þökkum Óttalausu stúlkunni fyrir komuna!

Óhætt er að segja að koma Óttalausu stúlkunnar (e. Fearless girl) hingað til lands hafi vakið athygli. Styttan af óttalausu stúlkunni, eftir listakonuna Kristen Visbal, var upphaflega sett upp í New York af State Street Investment Management í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna árið 2017.

Lesa meira
15. október 2026

Arion banki á Arctic Circle

Arion banki tók þátt í Arctic Circle Assembly 2026 sem fór fram í Hörpu og Reykjavík EDITION dagana 8.-10. október. Í ár sóttu ráðstefnuna yfir 2.300 þátttakendur frá meira en 70 löndum og komu um 700 fyrirlesarar fram á yfir 200 málstofum.

Lesa meira
14. október 2026

Óttalausa stúlkan kemur til Íslands

Hin heimsþekkta stytta Óttalausa stúlkan (e. Fearless Girl), táknmynd seiglu og hugrekkis um allan heim, er á leið til Íslands. Tilefnið er sá árangur sem náðst hefur með Konur fjárfestum átaksverkefni Arion banka á undanförnum árum.  

Lesa meira