15.05.2009
Öll bankaviðskipti á einum stað
Nýja Kaupþing og skilanefnd SPRON hafa gert með sér þjónustusamning vegna útlána fyrrum viðskiptavina SPRON. Það skal áréttað að útlánin eru í eigu skilanefndar SPRON en Nýja Kaupþing sér um að þjónusta þau.
Samningurinn felur í sér að Nýja Kaupþing kemur til með að þjónusta öll útlán til einstaklinga og fyrirtækja s.s. húsnæðislán, skuldabréf, erlend lán, víxla, rekstrarlán o.fl. sem tilheyrðu SPRON. Þá felur hann í sér alla almenna útlánavinnslu s.s. samskipti við skuldara, breytingar á lánaskjölum, breytingar á greiðslufyrirkomulagi, framlengingu lána og úrvinnsla lána sem komin eru í vanskil.
Við fögnum því að með samkomulaginu er þessum viðskiptavinum gert kleift að eiga öll sín bankaviðskipti á einum stað.
Starfsfólk Nýja Kaupþings er til þjónustu reiðubúið í 33 útibúum og afgreiðslum bankans um land allt og mun leggja sig fram við að mæta þörfum viðskiptavina.
Á fjórða tug öflugra fyrrum starfsmanna SPRON hefur verið ráðinn til Nýja Kaupþings undanfarnar vikur vegna breytinganna og til stendur að ráða fleiri. Flestir starfsmennirnir starfa í afgreiðslum og útibúum bankans.
Búast má við auknu álagi í útibúum bankans og vonumst við til að viðskiptavinir okkar sýni því skilning.