13.02.2013

Ösku­dag­ur í Arion banka

Fjöldi barna hefur heimsótt útibú Arion banka það sem af er degi, sungið fyrir starfsfólk og viðskiptavini og fengið að launum Andrésblað sem sérstaklega var útbúið fyrir Arion banka í tilefni af öskudegi til að gefa syngjandi kátum krökkum.

Öskudagsgjöfin er, eins og Lestrarvika Arion banka og Disney klúbbsins sem haldin er á ári hverju, liður í að hvetja krakka á öllum aldri til að vera dugleg að lesa sér til skemmtunar og fróðleiks.

Fjölmargir skemmtilegir búningar hafa sést í útibúum bankans í dag eins og sést á meðfylgjandi myndum, sem teknar voru í útibúi bankans í Kringlunni og á Höfðabakka í morgun.

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
20. október 2026

Við þökkum Óttalausu stúlkunni fyrir komuna!

Óhætt er að segja að koma Óttalausu stúlkunnar (e. Fearless girl) hingað til lands hafi vakið athygli. Styttan af óttalausu stúlkunni, eftir listakonuna Kristen Visbal, var upphaflega sett upp í New York af State Street Investment Management í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna árið 2017.

Lesa meira
15. október 2026

Arion banki á Arctic Circle

Arion banki tók þátt í Arctic Circle Assembly 2026 sem fór fram í Hörpu og Reykjavík EDITION dagana 8.-10. október. Í ár sóttu ráðstefnuna yfir 2.300 þátttakendur frá meira en 70 löndum og komu um 700 fyrirlesarar fram á yfir 200 málstofum.

Lesa meira
14. október 2026

Óttalausa stúlkan kemur til Íslands

Hin heimsþekkta stytta Óttalausa stúlkan (e. Fearless Girl), táknmynd seiglu og hugrekkis um allan heim, er á leið til Íslands. Tilefnið er sá árangur sem náðst hefur með Konur fjárfestum átaksverkefni Arion banka á undanförnum árum.  

Lesa meira