23.02.2012
Öskudagur í Arion banka
Þúsundir barna heimsóttu útibú Arion banka í dag, sungu fyrir starfsfólk og viðskiptavini og þáðu Andrésblað að launum.
Síðastliðið haust stóð Arion banki fyrir lestrarviku og verður leikurinn endurtekinn í apríl næstkomandi. Andrésblaðið sem börnin fengu að gjöf í dag var sérstaklega prentað fyrir bankann í tilefni Öskudags og er það, eins og Lestrarvika Arion banka, liður í að hvetja krakka á öllum aldri til að vera dugleg að lesa sér til skemmtunar.
Fjölmargir skemmtilegir búningar sáust og ljóst að mörg börn lögðu mikla vinnu í sína búninga eins og meðfylgjandi myndir, sem teknar voru í útibúi bankans við Hlemm, bera með sér.