05.01.2010
Okkar er að koma auga á möguleikana - skjádagatal Arion banka 2010
Skjádagatal Arion banka 2010 er komið á vefinn. Ljósmyndir Torfa Agnarssonar prýða dagatalið að þessu sinni. Viðskiptavinir Arion banka fá borðdagatalið sent heim á næstu dögum.
Hefðbundin nýting innlends hráefnis hefur öðlast sinn fyrri sess og íslenskir hönnuðir og hugvitsfólk hafa fundið not fyrir íslenskt hráefni sem hvaflaði ekki að nokkrum manni fyrir nokkrum misserum. Þema dagatals Arion banka í ár ber keim að þessum hugsunarhætti en þar er íslensku hráefni og hugviti gerð góð skil. Þar koma fram dæmi um verðmætin sem fólgin eru í íslenskri náttúru. Sagt er frá því hvernig hægt er að nýta fiskbein, krækling, söl, ætihvönn, fjallagrös, villisveppi og rekavið í hinar ýmsu afurðir. Í lýsingu á dagatalinu kemur fram:
,,Byggð, mannlíf og samfélag á Íslandi hafa frá upphafi grundvallast á gæðum landsins. Það er dýrmætt að búa yfir þekkingu á landinu, auðlindum íslenskrar náttúru og afurðum sem vinna má úr henni. Okkar er aðeins að koma auga á möguleikana."