24.06.2014

Okk­ar fólk tek­ur þátt í WOW Cyclot­hon sem hefst í kvöld

Á dögunum ákváðu nokkrir starfsmenn bankans að taka þátt í WOW Cyclothon. Fólkið okkar keppir í B-flokki sem inniheldur 10 manna lið og mun leggja af stað kl. 20:00 frá Hörpu í kvöld. Allt söfnunarfé keppninnar í ár rennur til bæklunarskurðdeildar Landspítalans og hefur markið verið sett á að safna 10 milljónum. Söfnunin er nú þegar komin í rúmar 5 milljónir en áheitasöfnuninni lýkur formlega á miðnætti mánudaginn 30. júní.

Hér má fylgjast með söfnun okkar fólks en hvert lið safnar sínum áheitum.

Hérmá fylgjast með hvar liðin eru stödd.

Reiðmennirnir eru með facebook síðu undir nafninu WOW Reiðmenn Arion banka og nota "taggið" #wowarion þegar þeir setja myndir á facebook og instagram. Hægt er að styrkja málefnið með sms áheitum í eftirfarandi símanúmer:

Upphæð: 1000 kr Sendið SMS skilaboðin: 1048

í símanúmerið: 907 1501

Upphæð: 3.000 kr

Sendið SMS skilaboðin: 1048

í símanúmerið: 907 1503

Upphæð: 5.000 kr

Sendið SMS skilaboðin: 1048

í símanúmerið: 907 1505

Upphæð: 10.000 kr

Sendið SMS skilaboðin: 1048

í símanúmerið: 907 1510

Reiðmenn Arion banka eru 10 talsins; Andrés Magnússon, Árni Örvar Daníelsson, Birnir Sær Björnsson, Einar Þór Einarsson (bíl- og liðsstjóri), Guðmundur Axel Hansen, Helen Ólafsdóttir, Hjalti Már Hauksson, Óskar Hafnfjörð Auðunsson, Ragnar Freyr Magnússon og Róbert Ragnar Grönqvist. Á myndinni má sjá hluta liðsins.

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
20. október 2026

Við þökkum Óttalausu stúlkunni fyrir komuna!

Óhætt er að segja að koma Óttalausu stúlkunnar (e. Fearless girl) hingað til lands hafi vakið athygli. Styttan af óttalausu stúlkunni, eftir listakonuna Kristen Visbal, var upphaflega sett upp í New York af State Street Investment Management í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna árið 2017.

Lesa meira
15. október 2026

Arion banki á Arctic Circle

Arion banki tók þátt í Arctic Circle Assembly 2026 sem fór fram í Hörpu og Reykjavík EDITION dagana 8.-10. október. Í ár sóttu ráðstefnuna yfir 2.300 þátttakendur frá meira en 70 löndum og komu um 700 fyrirlesarar fram á yfir 200 málstofum.

Lesa meira
14. október 2026

Óttalausa stúlkan kemur til Íslands

Hin heimsþekkta stytta Óttalausa stúlkan (e. Fearless Girl), táknmynd seiglu og hugrekkis um allan heim, er á leið til Íslands. Tilefnið er sá árangur sem náðst hefur með Konur fjárfestum átaksverkefni Arion banka á undanförnum árum.  

Lesa meira