30.08.2011
Opinn skógur að Fossá í Hvalfirði vígður
Um síðustu helgi var formleg vígsla á nýjasta svæði Opinna skóga. Nú eru svæðin orðin tólf og er Arion banki bakhjarl verkefnisins. Af því tilefni var boðað til hátíðar í skóginum og mættu hátt í þriðja hundrað manns á hátíðina.
Höskuldur H. Ólafsson bankastjóri hélt ávarp og talaði hann um farsælt samstarf bankans og Skógræktarfélags Íslands, sem á rætur að rekja til fjórða áratugar síðustu aldar. Ánægjulegt er að sjá hversu Opnir skógar eru vinsælir áfangastaðir og hér má sjá lista yfir skógana.
Markmiðið með verkefninu Opinn skógur er að opna fjölmörg skógræktarsvæði í eigu og umsjón skógræktarfélaga og gera þau aðgengileg almenningi. Áhersla er lögð á að aðstaða og aðgengi sé til fyrirmyndar og á að miðla upplýsingum og fræðslu um lífríki, náttúru og sögu.
Góðir gestir við vígslu Fossár