01.12.2008

Opn­un Kaupþing Sam­vals og Eign­a­stýr­ingar­sjóðs

Opnað hefur verið fyrir innlausnir í Kaupþing Samval og Eignastýringarsjóði.

Báðir sjóðirnir fjárfestu að mestu leyti í ríkistryggðum skuldabréfum og innlánum. Sjóðunum var lokað 3. október. Eftir fall bankanna voru nokkur skuldabréf, sem ekki hafa virka verðmyndun, endurmetin af óháðum endurskoðendum. Niðurstaðan varð sú að færa verðmæti beggja sjóða niður, þannig að þeir endurspegluðu innlausnarvirði hlutdeildarskírteina:

  • Lækkun á virði Eignastýringarsjóðs m.v. opnunargengi nemur 9,6%. Ávöxtun ársins fram að lokun sjóðsins 3. október var 16,3%.

  • Lækkun á virði Samvals m.v. opnunargengi nemur 12,5%. Ávöxtun ársins fram að lokun sjóðsins 3. október var 12,4%.

Pantanir sem lagðar eru inn á opnunartíma sjóðanna verða afgreiddar T+3 (þremur dögum eftir beiðni) í samræmi við reglur sjóðanna.

Við núverandi aðstæður verður lögð áhersla á örugga fjárfestingu í ríkistryggðum skuldabréfum og innlánum. Ljóst er að vextir og verðbólga munu breytast hratt á næstu misserum en markmið sjóðanna er sem fyrr að ávaxta fjármuni á virkan hátt þar sem tækifæri kunna að liggja.

Frekari upplýsingar um eignasamsetningu og fjárfestingarheimildir sjóðanna eru að finna heimasíðu bankans.

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
20. október 2026

Við þökkum Óttalausu stúlkunni fyrir komuna!

Óhætt er að segja að koma Óttalausu stúlkunnar (e. Fearless girl) hingað til lands hafi vakið athygli. Styttan af óttalausu stúlkunni, eftir listakonuna Kristen Visbal, var upphaflega sett upp í New York af State Street Investment Management í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna árið 2017.

Lesa meira
15. október 2026

Arion banki á Arctic Circle

Arion banki tók þátt í Arctic Circle Assembly 2026 sem fór fram í Hörpu og Reykjavík EDITION dagana 8.-10. október. Í ár sóttu ráðstefnuna yfir 2.300 þátttakendur frá meira en 70 löndum og komu um 700 fyrirlesarar fram á yfir 200 málstofum.

Lesa meira
14. október 2026

Óttalausa stúlkan kemur til Íslands

Hin heimsþekkta stytta Óttalausa stúlkan (e. Fearless Girl), táknmynd seiglu og hugrekkis um allan heim, er á leið til Íslands. Tilefnið er sá árangur sem náðst hefur með Konur fjárfestum átaksverkefni Arion banka á undanförnum árum.  

Lesa meira