09.01.2009
Opnun Verðbréfavals 1-5 og ÞEGAR
Opnað hefur verið fyrir innlausnir í fjárfestingarsjóðunum Verðbréfaval 1-5. Sjóðirnir eru blandaðir sjóðir sem fjárfesta í skuldabréfum og hlutabréfum. Sjóðirnir eru jafnframt undirliggjandi sjóðir í sparnaðarleiðinni ÞEGAR.
Nýtt gengi hefur verið reiknað fyrir hvern og einn sjóð. Um nokkra lækkun er að ræða á gengi sjóðanna, en lækkunin skýrist einkum af eign í innlendum hlutabréfum og verðrýrnun skuldabréfa. Slæmt árferði á erlendum hlutabréfamörkuðum á árinu 2008 hafði einnig sitt að segja um ávöxtun sjóðanna. Minnst lækkun er á þeim leiðum sem áttu hlutfallslega mest af skuldabréfum, enda var mikil áhersla lögð á ríkistryggð skuldabréf.
Fyrirliggjandi innlausnir verða afgreiddar á gengi dagsins í dag.
Hér að neðan má sjá ávöxtun ársins 2008, og lækkun á gengi sjóðanna frá 3. október 2008 til ársloka :
Verðbréfaval 1: -29,8%. Þar af nemur lækkun frá 3. október 20,5%
Verðbréfaval 2: -14,9%. Þar af nemur lækkun frá 3. október 15,1%
Verðbréfaval 3: -3,2%. Þar af nemur lækkun frá 3. október 12,5%
Verðbréfaval 4: 10,5%. Þar af nemur lækkun frá 3. október 8,8%
Verðbréfaval 5: 14,6%. Þar af nemur lækkun frá 3. október 9,1%
Ávöxtun ársins 2009 til dagsins í dag, þ.e. m.v. nýja innlausnargengið 9. janúar 2008, er:
Verðbréfaval 1: 4,9%
Verðbréfaval 2: 3,1%
Verðbréfaval 3: 2,3%
Verðbréfaval 4: 1,1%
Verðbréfaval 5: 1,1%
Verðbréfavalssjóðirnir verða reknir áfram í sömu mynd og viðskipti með hlutdeildarskírteini sjóðanna verða með óbreyttu sniði.
Nánari upplýsingar veitir Ráðgjöf Kaupþings í síma 444 7000.