22.06.2012

Orku­veit­an sem­ur við Arion banka um áhættu­varnir

Stjórn Orkuveitu Reykjavíkur (OR) hefur samþykkt að gera gjaldmiðlaskiptasamning við Arion banka til að verja fjárhag fyrirtækisins gegn gengissveiflum íslensku krónunnar. Samningurinn tryggir Orkuveitunni aðgang að erlendum gjaldeyri næstu sex árin og er verðmæti hans metið á um 15 milljarða króna.

Samningurinn er hinn þriðji á skömmum tíma sem Orkuveitan gerir til að treysta fjárhagslegar stoðir fyrirtækisins. Fyrir um mánuði var tilkynnt um að samist hefði við evrópsku bankana Dexia Crédit Local og DePfa um breytingar á gjalddögum lána.

Bjarni Bjarnason, forstjóri OR:

Í mars lauk uppstokkun í rekstri Orkuveitunnar. Umbæturnar hafa aukið tiltrú á fyrirtækið og gert okkur kleift að styrkja fjárhagslegar undirstöður rekstursins. Erlendar skuldir Orkuveitunnar eru miklar og gengisáhætta einhver helsta ógnin við stöðugan fjárhag fyrirtækisins. Það er því ánægjulegt að ná samningi um varnir gegn þeirri hættu. Á síðustu vikum hefur Orkuveitan endursamið við erlend fjármálafyrirtæki og það er gleðiefni að nú er gerður samningur við öflugan íslenskan banka.

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
20. október 2026

Við þökkum Óttalausu stúlkunni fyrir komuna!

Óhætt er að segja að koma Óttalausu stúlkunnar (e. Fearless girl) hingað til lands hafi vakið athygli. Styttan af óttalausu stúlkunni, eftir listakonuna Kristen Visbal, var upphaflega sett upp í New York af State Street Investment Management í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna árið 2017.

Lesa meira
15. október 2026

Arion banki á Arctic Circle

Arion banki tók þátt í Arctic Circle Assembly 2026 sem fór fram í Hörpu og Reykjavík EDITION dagana 8.-10. október. Í ár sóttu ráðstefnuna yfir 2.300 þátttakendur frá meira en 70 löndum og komu um 700 fyrirlesarar fram á yfir 200 málstofum.

Lesa meira
14. október 2026

Óttalausa stúlkan kemur til Íslands

Hin heimsþekkta stytta Óttalausa stúlkan (e. Fearless Girl), táknmynd seiglu og hugrekkis um allan heim, er á leið til Íslands. Tilefnið er sá árangur sem náðst hefur með Konur fjárfestum átaksverkefni Arion banka á undanförnum árum.  

Lesa meira