28.05.2014

Persónu­leg fjármála­ráð­gjöf efld í nýju úti­búi Arion banka í Borgar­túni

Arion banki mun þann 12. júní næstkomandi opna nýtt og glæsilegt útibú að Borgartúni 18 sem hannað er út frá nýrri hugmyndafræði í bankaþjónustu. Nýja útibúið er hugsað frá grunni út frá því hvernig einstaklingar og fyrirtæki kjósa að nýta sér fjármálaþjónustu í dag þar sem kröfur um aukinn hraða, valfrelsi og gæði persónulegrar ráðgjafar eru í brennipunkti.

Í Borgartún flyst starfsemi Arion banka frá Austurstræti og Hlemmi og verða starfsmenn um 36 talsins. Um er að ræða eitt stærsta og öflugasta útibú bankans og mun það þjóna bæði einstaklingum og fyrirtækjum. Samhliða, eða þann 11. júní, verður Arion banka í Austurstræti og við Hlemm lokað að því undanskildu að boðið verður upp á þjónustu gjaldkera á Hlemmi fram til 8. ágúst.

Lögð er áhersla á að nýta nýjustu tækni í bankaþjónustu með nýrri kynslóð hraðbanka sem bjóða upp á fjölbreyttari aðgerðir en áður og flýta jafnframt fyrir einfaldari þjónustuþáttum. Þessi tækni helst í hendur við aðrar rafrænar þjónustuleiðir Arion banka, en í dag nýta flestir viðskiptavina bankans sér netbankann og um þriðjungur nýtir sér kosti Arion appsins fyrir snjallsíma. Í nýja útibúinu í Borgartúni verður áfram boðið upp á þjónustu gjaldkera á hefðbundnum þjónustutíma en hraðbankarnir verða einnig aðgengilegir viðskiptavinum utan hans.

Persónuleg ráðgjöf og þjónusta verður stórefld. Þar gegnir lykilhlutverki hópur ráðgjafa bankans sem hlotið hafa formlega vottun sem fjármálaráðgjafar. Þannig mun fleira starfsfólk en áður verða til taks til að sinna sérhæfðri fjármálaþjónustu s.s. ráðgjöf á sviði sparnaðar, lífeyrismála og fjármögnunar íbúðarhúsnæðis.

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
20. október 2026

Við þökkum Óttalausu stúlkunni fyrir komuna!

Óhætt er að segja að koma Óttalausu stúlkunnar (e. Fearless girl) hingað til lands hafi vakið athygli. Styttan af óttalausu stúlkunni, eftir listakonuna Kristen Visbal, var upphaflega sett upp í New York af State Street Investment Management í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna árið 2017.

Lesa meira
15. október 2026

Arion banki á Arctic Circle

Arion banki tók þátt í Arctic Circle Assembly 2026 sem fór fram í Hörpu og Reykjavík EDITION dagana 8.-10. október. Í ár sóttu ráðstefnuna yfir 2.300 þátttakendur frá meira en 70 löndum og komu um 700 fyrirlesarar fram á yfir 200 málstofum.

Lesa meira
14. október 2026

Óttalausa stúlkan kemur til Íslands

Hin heimsþekkta stytta Óttalausa stúlkan (e. Fearless Girl), táknmynd seiglu og hugrekkis um allan heim, er á leið til Íslands. Tilefnið er sá árangur sem náðst hefur með Konur fjárfestum átaksverkefni Arion banka á undanförnum árum.  

Lesa meira