10.11.2011
Ráðstefna - Hönnun í útflutning
Íslandsstofa hélt í gær, miðvikudaginn 9. nóvember, ráðstefnu og sýningu í tengslum við verkefnið Hönnun í útflutning í höfuðstöðvum Arion banka.
Anders Fanö frá Dansk Design Center, fjallaði um reynslu DDC af þeirri verðmætasköpun sem felst í samstarfi hönnuða og fyrirtækja auk þess sem Thomas Harrit frá hinni margverðlaunuðu hönnunarstofu Harrit-Sörensen ApS sagði frá árangursríkum verkefnum fyrirtækisins.
Hönnun í útflutning er samstarfsverkefni Íslandsstofu, Hönnunarmiðstöðvar Íslands, Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands og Samtaka iðnaðarsins. Markmið þess er að leiða saman hönnuði og fyrirtæki í samvinnu um hönnun og framleiðslu á útflutningsvörum. Nánari upplýsingar um verkefnið má finna á vefsíðu Íslandsstofu, www.islandsstofa.is.
Vel tókst til og gaman var að sjá fallega hönnun á íslenskum vörum, sjá meðfylgjandi myndir.
ItemList1347false1false10215
Myndirnar tók Sigrún Össurardóttir.