04.10.2010

Ráð­stefna í Há­skóla­bíói 1. nóv­em­ber - Michael Port­er

Michael Porter kynnir rannsókn á klasamyndun í íslenskum jarðvarmageira

Arion banki verður aðalbakhjarl rannsóknarinnar

Undirritað hefur verið samkomulag milli ráðgjafafyrirtækisins Gekon og Arion banka þess efnis að bankinn verði aðalbakhjarl rannsóknar á klasamyndun í íslenskum jarðvarmageira undir forystu Dr. Michael Porter prófessors við Harvard viðskiptaháskólann.
Rannsóknin verður kynnt á ráðstefnu í Háskólabíói 1. nóvember næstkomandi.

Michael Porter, sem er einn helsti fræðimaður heims á sviði stefnumótunar og samkeppnishæfni þjóða, er höfundur hinnar svokölluðu klasakenningar (e. Cluster policy). Kenningin tekur til myndunar sérhæfðra klasa, svo sem á sviði hátækni, sjávarútvegs, iðnaðar eða jarðvarma, sem gera samfélögum kleift að rækta styrkleika sína með skilvirkum og árangursríkum hætti með það að markmiði að auka varanlega hagsæld og velferð.

Á ráðstefnunni mun Michael Porter kynna rannsókn sína á klasamyndun í íslenskum jarðvarmageira og með hvaða hætti best sé að haga uppbyggingu íslensks jarðvarmaklasa, en Michael Porter hefur á undanförnum árum sýnt íslenskum orkugeira mikinn áhuga, ekki síst jarðvarmavinnslu.

Auk Porters mun Dr. Christian Ketels, einnig frá Harvard viðskiptaháskólanum, gera grein fyrir einkennum hins íslenska jarðvarmaklasa og Katrín Júlíusdóttir iðnaðarráðherra mun taka til máls um hlutverk stjórnvalda. Fjöldi annarra sérfræðinga, innlendra sem erlendra, mun taka til máls. Forseti Íslands, hr. Ólafur Ragnar Grímsson, er verndari ráðstefnunnar.

Það er Gekon sem á veg og vanda af komu Dr. Michael Porter til landsins og undangenginni rannsóknarvinnu undir hans stjórn og ber ábyrgð á framkvæmd vinnunnar hérlendis ásamt KPMG á Íslandi. Samstarfsaðilar hér á landi eru yfir 50 talsins: Ráðuneyti, orkufyrirtæki, verkfræðistofur, fjármálastofnanir, rannsóknarstofnanir og háskólar auk Arion banka sem er aðalbakhjarl rannsóknarinnar.

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
20. október 2026

Við þökkum Óttalausu stúlkunni fyrir komuna!

Óhætt er að segja að koma Óttalausu stúlkunnar (e. Fearless girl) hingað til lands hafi vakið athygli. Styttan af óttalausu stúlkunni, eftir listakonuna Kristen Visbal, var upphaflega sett upp í New York af State Street Investment Management í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna árið 2017.

Lesa meira
15. október 2026

Arion banki á Arctic Circle

Arion banki tók þátt í Arctic Circle Assembly 2026 sem fór fram í Hörpu og Reykjavík EDITION dagana 8.-10. október. Í ár sóttu ráðstefnuna yfir 2.300 þátttakendur frá meira en 70 löndum og komu um 700 fyrirlesarar fram á yfir 200 málstofum.

Lesa meira
14. október 2026

Óttalausa stúlkan kemur til Íslands

Hin heimsþekkta stytta Óttalausa stúlkan (e. Fearless Girl), táknmynd seiglu og hugrekkis um allan heim, er á leið til Íslands. Tilefnið er sá árangur sem náðst hefur með Konur fjárfestum átaksverkefni Arion banka á undanförnum árum.  

Lesa meira