27.04.2009

Raf­ræn skjöl spara viðskipta­vin­um Nýja Kaupþings þús­undir króna ár­lega

Viðskiptavinir Nýja Kaupþings sem eru með netbanka fá nú öll yfirlit hjá bankanum send rafrænt til sín. Þetta sparar hverjum og einum þúsundir króna árlega í sendingar- og pappírskostnað. Öll yfirlit eru geymd í netbankanum í 7 ár.

Þá geta viðskiptavinir bankans einnig sparað sér sendingar-og pappírskostnað með því að afpanta pappírsyfirlit fyrir VISA , MasterCard, lífeyrir og greiðsluseðla.

Hátt í þúsund manns hafa nú þegar afpantað slík yfirlit og fá því eingöngu rafræn skjöl.

Framtakið er liður í þeirri stefnu Nýja Kaupþings að vera umhverfisvænn banki um leið og þetta er til mikils hagræðis og sparnaðar fyrir viðskiptavini bankans.

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
20. október 2026

Við þökkum Óttalausu stúlkunni fyrir komuna!

Óhætt er að segja að koma Óttalausu stúlkunnar (e. Fearless girl) hingað til lands hafi vakið athygli. Styttan af óttalausu stúlkunni, eftir listakonuna Kristen Visbal, var upphaflega sett upp í New York af State Street Investment Management í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna árið 2017.

Lesa meira
15. október 2026

Arion banki á Arctic Circle

Arion banki tók þátt í Arctic Circle Assembly 2026 sem fór fram í Hörpu og Reykjavík EDITION dagana 8.-10. október. Í ár sóttu ráðstefnuna yfir 2.300 þátttakendur frá meira en 70 löndum og komu um 700 fyrirlesarar fram á yfir 200 málstofum.

Lesa meira
14. október 2026

Óttalausa stúlkan kemur til Íslands

Hin heimsþekkta stytta Óttalausa stúlkan (e. Fearless Girl), táknmynd seiglu og hugrekkis um allan heim, er á leið til Íslands. Tilefnið er sá árangur sem náðst hefur með Konur fjárfestum átaksverkefni Arion banka á undanförnum árum.  

Lesa meira