31.05.2011
Raunvísindastofnun telur reikniaðferðir Arion banka réttar
Vegna umræðu um þá aðferðafræði sem fjármálastofnanir beittu við endurútreikning erlendra lána ákvað Umboðsmaður skuldara í aprílbyrjun að leita til Raunvísindastofnunar Háskóla Íslands til að fá hlutlaust og faglegt mat á útreikningum fjármálafyrirtækjanna. Markmiðið var að greina hvort fjármálafyrirtækin stæðu að endurútreikningi með sambærilegum hætti, en markmið laga nr. 151/2010 var meðal annars að tryggja samræmi í endurútreikningum, eins og segir í nýlegri tilkynningu frá Umboðsmanni skuldara.
Í greinargerð Raunvísindastofnunar Háskóla Íslands kemur fram að niðurstaða þeirrar könnunar sem stofnunin framkvæmdi sé að lánafyrirtækin og Arion banki þar með talinn, reikna húsnæðislán með sambærilegum hætti og þá með þeirri aðferð sem lögin kveða á um. Einnig kemur fram að í þeim tilvikum þar sem munur er á gefa reikningar fyrirtækjanna niðurstöðu sem er heldur hagstæðari fyrir lántaka.