08.07.2013

Reit­un hef­ur upp­fært láns­hæf­is­mat á Arion banka hf.

Mat Reitunar á lánshæfi Arion banka er B+ með jákvæðum horfum. Lánshæfismatið hefur því breyst úr stöðugum horfum í jákvæðar.

í greiningu Reitunar kemur fram að bankinn horfi í vaxandi mæli til framtíðar. Fjárhagslegur styrkleiki bankans er mikill og kjarnastarfsemi og samkeppnisstaða sterk. Gæði lánasafnsins fer batnandi og lok fjárhagslegar endurskipulagningar nokkurra stórra aðila sem unnið hefur verið að mun styrkja kennitölur. Gangi það eftir í samræmi við áætlun mun einkunn bankans hækka. Niðurstaða lánshæfismats er óbreytt einkunn en horfur breytast í jákvæðar. Sérstakar aðstæður á Íslandi, s.s. gjaldeyrishöft, uppgjör við kröfuhafa og pólitísk óvissa, hafa verulega neikvæð áhrif á alþjóðlegt lánshæfismat Íslands og þar með bankans og mun það torvelda erlenda lánsfjármögnun bankans. Bankinn er hins vegar vel fjármagnaður í erlendri mynt og þarf ekki á endurfjármögnun að halda á næstunni.

Arion banki lánshæfismat júlí 2013.pdf

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
20. október 2026

Við þökkum Óttalausu stúlkunni fyrir komuna!

Óhætt er að segja að koma Óttalausu stúlkunnar (e. Fearless girl) hingað til lands hafi vakið athygli. Styttan af óttalausu stúlkunni, eftir listakonuna Kristen Visbal, var upphaflega sett upp í New York af State Street Investment Management í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna árið 2017.

Lesa meira
15. október 2026

Arion banki á Arctic Circle

Arion banki tók þátt í Arctic Circle Assembly 2026 sem fór fram í Hörpu og Reykjavík EDITION dagana 8.-10. október. Í ár sóttu ráðstefnuna yfir 2.300 þátttakendur frá meira en 70 löndum og komu um 700 fyrirlesarar fram á yfir 200 málstofum.

Lesa meira
14. október 2026

Óttalausa stúlkan kemur til Íslands

Hin heimsþekkta stytta Óttalausa stúlkan (e. Fearless Girl), táknmynd seiglu og hugrekkis um allan heim, er á leið til Íslands. Tilefnið er sá árangur sem náðst hefur með Konur fjárfestum átaksverkefni Arion banka á undanförnum árum.  

Lesa meira