10.02.2014

Reit­un hef­ur upp­fært láns­hæf­is­mat á Arion banka hf.

Mat Reitunar á lánshæfi Arion banka er i.BBB1 með jákvæðum horfum og lánshæfismat sértryggðra skuldabréfa bankans er i.AA2. Lánshæfismatið er það sama og í júlí 2013 en einkunnaskali Reitunar hefur breyst. Lánshæfismat bankans og sértryggðra skuldabréfa hans verður uppfært í kjölfar birtingar á ársreikningi ársins 2013.

Í greiningu Reitunar kemur fram að bankinn sé langt kominn með að leysa úr vandamálum tengdum bankahruninu. Gæði lánasafnsins fara batnandi og fjárhagslegur styrkleiki bankans hefur aukist. Afkoma tengd kjarnastarfsemi er góð og samkeppnisstaðan sterk. Lok fjárhagslegar endurskipulagningar nokkurra stórra aðila, sem unnið hefur verið að, mun styrkja kennitölur. Gangi það eftir í samræmi við áætlun mun einkunn bankans hækka.

Sérstakar aðstæður á Íslandi, s.s. gjaldeyrishöft, uppgjör við kröfuhafa og pólitísk óvissa, hafa neikvæð áhrif á alþjóðlegt lánshæfismat íslenskra aðila, þ.e. ríkissjóð, fyrirtæki og sveitarfélög. Þessar aðstæður munu því hafa neikvæð áhrif á kjör bankans á erlendum lánamörkuðum.

Framtíðarhorfur bankans eru góðar, þó íslenska hagkerfið sé sveiflukennt.

Lánshæfismat Reitunar febrúar 2014

Nýr einkunnaskali febrúar 2014

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
20. október 2026

Við þökkum Óttalausu stúlkunni fyrir komuna!

Óhætt er að segja að koma Óttalausu stúlkunnar (e. Fearless girl) hingað til lands hafi vakið athygli. Styttan af óttalausu stúlkunni, eftir listakonuna Kristen Visbal, var upphaflega sett upp í New York af State Street Investment Management í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna árið 2017.

Lesa meira
15. október 2026

Arion banki á Arctic Circle

Arion banki tók þátt í Arctic Circle Assembly 2026 sem fór fram í Hörpu og Reykjavík EDITION dagana 8.-10. október. Í ár sóttu ráðstefnuna yfir 2.300 þátttakendur frá meira en 70 löndum og komu um 700 fyrirlesarar fram á yfir 200 málstofum.

Lesa meira
14. október 2026

Óttalausa stúlkan kemur til Íslands

Hin heimsþekkta stytta Óttalausa stúlkan (e. Fearless Girl), táknmynd seiglu og hugrekkis um allan heim, er á leið til Íslands. Tilefnið er sá árangur sem náðst hefur með Konur fjárfestum átaksverkefni Arion banka á undanförnum árum.  

Lesa meira