15.05.2014

Reit­un hef­ur upp­fært láns­hæf­is­mat á Arion banka hf.

Mat Reitunar á lánshæfi Arion banka er i.A3 með stöðugum horfum. Lánshæfismatið hefur því hækkað úr i.BBB1 með jákvæðum horfum. Lánshæfismat sértryggðra skuldabréfa bankans er i.AA2, með stöðugum horfum, sem er óbreytt frá fyrra ári.

Í greiningu Reitunar kemur fram að úrvinnsla vandræðalána hafi gengið samkvæmt áætlun og gæði lánasafnsins hafi aukist til muna auk þess sem hlutfall íbúðarlána í lánasafni hafi aukist og veðstaða batnað samhliða hækkandi fasteignaverði.

Matið byggir á háu eiginfjárhlutfalli bankans, háu lausafjárhlutfalli og sterkri markaðsstöðu ásamt líklegum utanaðkomandi stuðningi Seðlabankans ef til þess kæmi. Jafnframt er minnkandi óvissa tengd gæðum eigna bankans og afskriftarþörf fer minnkandi. Efnahagshorfur eru ágætar og framtíðarhorfur bankans eru góðar.

Horfur eru á því að lánshæfi bankans gæti batnað enn frekar með auknum gæðum útlánasafnsins, minni samþjöppun og auknum stöðugleika í rekstri og umhverfi.

Lánshæfismat Reitunar maí 2014

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
20. október 2026

Við þökkum Óttalausu stúlkunni fyrir komuna!

Óhætt er að segja að koma Óttalausu stúlkunnar (e. Fearless girl) hingað til lands hafi vakið athygli. Styttan af óttalausu stúlkunni, eftir listakonuna Kristen Visbal, var upphaflega sett upp í New York af State Street Investment Management í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna árið 2017.

Lesa meira
15. október 2026

Arion banki á Arctic Circle

Arion banki tók þátt í Arctic Circle Assembly 2026 sem fór fram í Hörpu og Reykjavík EDITION dagana 8.-10. október. Í ár sóttu ráðstefnuna yfir 2.300 þátttakendur frá meira en 70 löndum og komu um 700 fyrirlesarar fram á yfir 200 málstofum.

Lesa meira
14. október 2026

Óttalausa stúlkan kemur til Íslands

Hin heimsþekkta stytta Óttalausa stúlkan (e. Fearless Girl), táknmynd seiglu og hugrekkis um allan heim, er á leið til Íslands. Tilefnið er sá árangur sem náðst hefur með Konur fjárfestum átaksverkefni Arion banka á undanförnum árum.  

Lesa meira