08.07.2013
Reitun hefur uppfært lánshæfismat á sértryggðum skuldabréfum Arion banka hf.
Lánshæfismat Reitunar á sértryggðum skuldabréfum, útgefnum af Arion banka hf., er A, sem er sama mat og fyrirtækið gefur íslenska ríkinu. Matið er óbreytt frá fyrra ári. Lánshæfismat skuldabréfanna byggir bæði á lánshæfismati Arion banka og mati á áhættu tryggingasafnsins.
Að mati Reitunar hefur Arion banki sterka lausafjár- og eiginfjárstöðu og því góðan viðnámsþrótt gagnvart áföllum. Auk þess eru tryggingar sértryggðu bréfanna góðar og væntar endurheimtur bréfanna því miklar.
Horfur eru stöðugar.