10.06.2009

Rekstrar­félag Kaupþings banka hf. Breyt­ingar á sam­þykkt­um og ný stjórn kjör­in

Aðalfundur Rekstrarfélags Kaupþings banka hf. var haldinn þriðjudaginn 9. júní 2009. Á fundinum voru samþykktar tillögur um breytingar á samþykktum félagsins, en meðal breytinga var að stjórnarmönnum félagsins var fjölgað úr þremur í fimm. Á fundinum var jafnframt kjörin ný stjórn félagsins.

Í aðalstjórn félagsins voru kjörin:
Hrund Rudolfsdóttir, framkvæmdastjóri starfsþróunar hjá Marel Food Systems Corporate (formaður stjórnar)
Eggert Teitsson, framkvæmdastjóri fjármálasviðs Nýja Kaupþings banka hf. 
Snjólfur Ólafsson, prófessor við Viðskiptafræðideild Háskóla Íslands
Svava Bjarnadóttir, fjármálastjóri hjá Verkfræðistofunni Mannviti hf.
Þórður Pálsson, sérfræðingur hjá Nýja Kaupþingi banka hf.

Í varastjórn félagsins voru kjörin:
Ásgerður Hrönn Sveinsdóttir, útibússtjóri. hjá Nýja Kaupþingi banka hf.
Gunnar Ingi Jóhannsson, lögmaður hjá Lögmönnum Höfðabakka
Kristbjörg Edda Jóhannsdóttir, deildarstjóri á vöruþróunarsviði Össurar hf.
Sturla Jónsson, forstöðumaður í Hagdeild Nýja Kaupþings banka hf.
Þórhallur Örn Guðlaugsson, dósent við Viðskiptadeild Háskóla Íslands

Meirihluti stjórnarmanna er óháður Nýja Kaupþingi banka hf., móðurfélagi Rekstrarfélags Kaupþings banka hf.

Nánari upplýsingar veitir Ómar Kaldal Ágústsson, framkvæmdastjóri félagsins, í síma 444 6000.

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
20. október 2026

Við þökkum Óttalausu stúlkunni fyrir komuna!

Óhætt er að segja að koma Óttalausu stúlkunnar (e. Fearless girl) hingað til lands hafi vakið athygli. Styttan af óttalausu stúlkunni, eftir listakonuna Kristen Visbal, var upphaflega sett upp í New York af State Street Investment Management í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna árið 2017.

Lesa meira
15. október 2026

Arion banki á Arctic Circle

Arion banki tók þátt í Arctic Circle Assembly 2026 sem fór fram í Hörpu og Reykjavík EDITION dagana 8.-10. október. Í ár sóttu ráðstefnuna yfir 2.300 þátttakendur frá meira en 70 löndum og komu um 700 fyrirlesarar fram á yfir 200 málstofum.

Lesa meira
14. október 2026

Óttalausa stúlkan kemur til Íslands

Hin heimsþekkta stytta Óttalausa stúlkan (e. Fearless Girl), táknmynd seiglu og hugrekkis um allan heim, er á leið til Íslands. Tilefnið er sá árangur sem náðst hefur með Konur fjárfestum átaksverkefni Arion banka á undanförnum árum.  

Lesa meira