25.06.2009
Rekstrarfélag Kaupþings banka hf. - Nýr framkvæmdastjóri ráðinn
Stjórn Rekstrarfélags Kaupþings banka hf. hefur ráðið Flóka Halldórsson sem framkvæmdastjóra félagsins frá og með 1. júlí nk. Ómar K. Ágústsson, sem gegnt hefur starfi framkvæmdastjóra félagsins, mun hætta störfum á sama tíma og hefja störf hjá Nýja Kaupþingi banka hf.
Nánari upplýsingar veitir Snjólfur Ólafsson, varaformaður stjórnar félagsins, í síma 692 3232.