19.01.2012
Rekstur eftirlaunasjóðs FÍA kominn í hendur Arion banka
Í byrjun árs 2012 færðist rekstur og eignastýring Eftirlaunasjóðs Félags íslenskra atvinnuflugmanna (EFÍA) yfir til Arion banka.
Sjóðurinn er rúmir 18 milljarðar að stærð og eru sjóðfélagar um 800 talsins. Haraldur Yngvi Pétursson hefur tekið við sem framkvæmdastjóri sjóðsins.
Sjóðfélagar munu geta nálgast allar upplýsingar og þjónustu í útibúi Arion banka við Hlemm en öflugur hópur starfsfólks mun eingöngu sinna því starfi að þjónusta sjóðfélaga.