16.04.2014

Ríf­lega 3,5 millj­ónir frá starfs­fólki Arion banka til Krabba­meins­félagsins

Í tilefni af Mottumars hélt starfsfólk Arion banka svokallað Karlakvöld Arion banka föstudagskvöldið 21. mars síðastliðinn. Kvöldið var haldið í höfuðstöðvum bankans til styrktar baráttunni gegn krabbameini hjá körlum. Alls söfnuðust 2.045.500 krónur á kvöldinu og hefur styrkurinn nú verið afhentur forsvarsmönnum verkefnisins Heilsusaga Íslands sem unnið er í samstarfi við Krabbameinsfélag Íslands.

Unnur Anna Valdimarsdóttir, prófessor við læknadeild Háskóla Íslands og ábyrgðarmaður rannsóknarinnar:

„Við erum með alveg sérstakar aðstæður til þekkingarsköpunar á þessu sviði hér á Íslandi vegna þess að við höfum heilbrigðisskrár og getum fylgt allri þjóðinni eftir. Við vitum hverjir lifa og hverjir deyja, hverjir veikjast og hverjir ekki. Með því að safna líka upplýsingum um það hvernig fólk lifir og hvernig því líður þá höfum við mjög viðamiklar upplýsingar sem við getum nýtt til að skapa betri þekkingu á þessu sviði. Þessi styrkur frá starfsmönnum Arion banka er algjörlega ómetanlegur fyrir okkur í uppbyggingu þessa verkefnis því að við höfum séð að við erum ekki að fá styrki frá hinu opinbera hér á Íslandi. Okkar stóra markmið er því að vera í samstarfi við einkafyrirtæki og erlenda vísindasjóði.“

Þess má geta að í október var Konukvöld Arion banka haldið í tilefni af Bleikum mánuði Krabbameinsfélagsins. Þá söfnuðust alls 1.500.000 krónur og var styrkurinn afhentur Krabbameinsfélaginu í kjölfarið. Undanfarið hálft ár hefur því starfsfólk Arion banka safnað alls 3.545.500 krónum til styrktar Krabbameinsfélaginu og verkefnum því tengdu.

Ragnheiður Haraldsdóttir, forstjóri Krabbameinsfélagsins:

„Fyrir hönd Krabbameinsfélagsins vil ég þakka starfsfólki Arion banka fyrir alla þá vinnu sem ég veit að liggur að baki þessum kvöldum. Ég vil líka þakka fyrir allt það sem bankinn hefur verið að leggja okkur til í gegnum tíðina. Það er svo mikill kraftur í fólki hér í bankanum og ég hef stundum hugsað ef öll fyrirtæki væru svona, mikið einstaklega væri þá gaman í þessu starfi mínu.“

Fjárhæðin sem safnaðist á Kvennakvöldi Arion banka rann til endurbóta á leit á leghálskrabbameini og forstigum þess þar sem taka á upp nýja tækni sem eykur gæði og öryggi mælinga. Sú tækni gefur einnig kost á að finna þær konur sem eru í meiri áhættu og þurfa að koma oft og reglulega í eftirlit.

Um Heilsusögu Íslendinga

Heilsusaga er langtíma ferilrannsókn sem hefur að meginmarkmiði að varpa ljósi á áhrif og samspil nútíma lífsstíls, félagslegra aðstæðna, streitu og erfða á heilsu. Rannsóknin er samstarfsverkefni Háskóla Íslands og Krabbameinsfélags Íslands við ýmsa innlenda og erlenda samstarfsaðila. Áætlað er að rannsóknin taki til um 100.000 Íslendinga á næstu 10 árum. Þátttakendur fá endurgjöf á lífsstíl sinn og heilsufar í gegnum rannsóknina. Kerfisbundnar forvarnir eru því samtvinnaðar við þessa viðamiklu vísindarannsókn og samfélagslegur ávinningur verkefnisins þannig margþættur.

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
20. október 2026

Við þökkum Óttalausu stúlkunni fyrir komuna!

Óhætt er að segja að koma Óttalausu stúlkunnar (e. Fearless girl) hingað til lands hafi vakið athygli. Styttan af óttalausu stúlkunni, eftir listakonuna Kristen Visbal, var upphaflega sett upp í New York af State Street Investment Management í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna árið 2017.

Lesa meira
15. október 2026

Arion banki á Arctic Circle

Arion banki tók þátt í Arctic Circle Assembly 2026 sem fór fram í Hörpu og Reykjavík EDITION dagana 8.-10. október. Í ár sóttu ráðstefnuna yfir 2.300 þátttakendur frá meira en 70 löndum og komu um 700 fyrirlesarar fram á yfir 200 málstofum.

Lesa meira
14. október 2026

Óttalausa stúlkan kemur til Íslands

Hin heimsþekkta stytta Óttalausa stúlkan (e. Fearless Girl), táknmynd seiglu og hugrekkis um allan heim, er á leið til Íslands. Tilefnið er sá árangur sem náðst hefur með Konur fjárfestum átaksverkefni Arion banka á undanförnum árum.  

Lesa meira