29.01.2014

Ríf­lega 900 þús­und krón­ur frá e-­kort­höf­um til Mæðra­styrksnefndar Reykja­vík­ur

Í lok síðasta árs fengu e-korthafar hjá Arion banka sína árlegu endurgreiðslu en hún er hluti af árlegum ávinningi sem e-korthafar fá. Korthafar gátu ráðstafað endurgreiðslunni inn á sinn bankareikning, fengið vildarpunkta eða gefið mæðrastyrksnefnd upphæðina að hluta eða öllu leyti.

Fjölmargir korthafa kusu að leggja mæðrastyrksnefnd lið og runnu því 931.252 krónur frá korthöfum til þeirra nú í janúarmánuði. Upphæðin hefur farið hækkandi ár frá ári en þetta er í fjórða sinn sem e-korthöfum gefst kostur á að styrkja mæðrastyrksnefnd með þessu hætti.

Ávinningur e-kortsins felst í því að Arion banki endurgreiðir korthöfum 0,3% af veltu korthafa fyrir öll viðskipti korthafa hjá innlendum söluaðilum. Auk þess geta e-korthafar hækkað endurgreiðsluna enn meira með því að beina viðskiptum sínum til hátt í 200 samstarfsfyrirtækja e-kortsins en þau veita viðbótarendurgreiðslu á bilinu 0,65%-20% af veltunni. Einnig bjóðast korthöfum fjöldi sértilboða.

Þess má geta að Arion banki veitti Mæðrastyrksnefnd auk Hjálparstarfi kirkjunnar og Rauða kross Íslands styrki að upphæð tvær milljónir króna hver, í tilefni af jólaúthlutun þeirra nú í desember.

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
20. október 2026

Við þökkum Óttalausu stúlkunni fyrir komuna!

Óhætt er að segja að koma Óttalausu stúlkunnar (e. Fearless girl) hingað til lands hafi vakið athygli. Styttan af óttalausu stúlkunni, eftir listakonuna Kristen Visbal, var upphaflega sett upp í New York af State Street Investment Management í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna árið 2017.

Lesa meira
15. október 2026

Arion banki á Arctic Circle

Arion banki tók þátt í Arctic Circle Assembly 2026 sem fór fram í Hörpu og Reykjavík EDITION dagana 8.-10. október. Í ár sóttu ráðstefnuna yfir 2.300 þátttakendur frá meira en 70 löndum og komu um 700 fyrirlesarar fram á yfir 200 málstofum.

Lesa meira
14. október 2026

Óttalausa stúlkan kemur til Íslands

Hin heimsþekkta stytta Óttalausa stúlkan (e. Fearless Girl), táknmynd seiglu og hugrekkis um allan heim, er á leið til Íslands. Tilefnið er sá árangur sem náðst hefur með Konur fjárfestum átaksverkefni Arion banka á undanförnum árum.  

Lesa meira