30.04.2012

Ríf­lega hálft tonn safn­aðist í fata­söfn­un starfs­manna Arion banka til styrkt­ar Rauða krossi Ís­lands

Starfsfólk Arion banka ákvað að kveðja vetur og fagna sumri með því að taka til í skápum og geymslum og gefa í fatasöfnun Rauða krossins. Söfnunin stóð yfir í eina viku og starfsmenn bankans víða um land lögðu sitt af mörkum, allt frá Reykjavík til Sauðárkróks. Afraksturinn varð ríflega hálft tonn af fatnaði sem nú mun öðlast nýtt líf jafnt hér á Íslandi sem erlendis en Rauði krossinn nýtir allan fatnað sem hann fær. Sumt er selt úr landi og ágóðinn rennur í Hjálparsjóð Rauða krossins, annað er flokkað og gefið þurfandi á Íslandi sem og erlendis eða selt í Rauðakrossbúðunum.

„Við þökkum kærlega fyrir okkur“ segir Kristján Sturluson, framkvæmdastjóri Rauða krossins. „Þetta er lofsvert framtak og með stærri einstökum fataframlögum til Rauða krossins á síðustu árum. Við hvetjum önnur fyrirtæki til að fara að þessu góða fordæmi.“

Fatasöfnun Rauða krossins er orðin eitt mikilvægasta fjáröflunarverkefnið fyrir Hjálparsjóð Rauða kross Íslands. Afrakstur fatasöfnunar ársins 2011 var 84 milljónir króna sem greiddar voru í Hjálparsjóð en hann er einkum notaður til alþjóðlegs hjálparstarfs. Þá úthlutaði Rauði krossinn einnig fatnaði til um 1.400 einstaklinga hér á landi árið 2011, auk þess sem ýmsar stofnanir, fangelsi og meðferðarheimili fengu fatnað fyrir sína skjólstæðinga, þannig að hér er um að ræða afskaplega gott og þarft málefni.

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
20. október 2026

Við þökkum Óttalausu stúlkunni fyrir komuna!

Óhætt er að segja að koma Óttalausu stúlkunnar (e. Fearless girl) hingað til lands hafi vakið athygli. Styttan af óttalausu stúlkunni, eftir listakonuna Kristen Visbal, var upphaflega sett upp í New York af State Street Investment Management í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna árið 2017.

Lesa meira
15. október 2026

Arion banki á Arctic Circle

Arion banki tók þátt í Arctic Circle Assembly 2026 sem fór fram í Hörpu og Reykjavík EDITION dagana 8.-10. október. Í ár sóttu ráðstefnuna yfir 2.300 þátttakendur frá meira en 70 löndum og komu um 700 fyrirlesarar fram á yfir 200 málstofum.

Lesa meira
14. október 2026

Óttalausa stúlkan kemur til Íslands

Hin heimsþekkta stytta Óttalausa stúlkan (e. Fearless Girl), táknmynd seiglu og hugrekkis um allan heim, er á leið til Íslands. Tilefnið er sá árangur sem náðst hefur með Konur fjárfestum átaksverkefni Arion banka á undanförnum árum.  

Lesa meira