16.06.2011

Rjóður í kynn­um - Kort sem sýnir áhuga­verða úti­vist­ar­skóga

Í tilefni af alþjóðlegu ári skóga árið 2011 hafa Skógræktarfélag Íslands og Arion banki gefið út kortið ,,Rjóður í kynnum“ en í því er að finna upplýsingar um 50 áhugaverða útivistarskóga um land allt. Skógarnir eru af öllum stærðum og gerðum, langflestir í alfaraleið og margir í næsta nágrenni við helstu þéttbýlisstaði. Þeir eru því upplagðir áningarstaðir fólks sem á leið um landið.

Eins og nafn kortsins gefur til kynna er megintilgangur þess að vekja athygli landsmanna á skógunum og hvetja þá til að staldra þar við og eiga ánægjulegar stundir í skjóli trjáa. ,,Rjóður í kynnum“ er kjörinn ferðafélagi hvort sem fólk hefur brennandi áhuga á útivist og náttúruskoðun eða er aðeins að leita að fallegum stað til að teygja úr stirðum leggjum eftir langa ökuferð.

Á kortinu má sjá staðsetningu reitanna og einnig er stutt lýsing á hverjum og einum reit ásamt upplýsingum um aðstöðu/þjónustu á staðnum og GPS-hnit sem auðvelda fólki að finna þá.

Kortinu verður dreift endurgjaldslaust í útibúum Arion banka, upplýsingamiðstöðvum ferðamála, garðplöntusölum og víðar.

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
20. október 2026

Við þökkum Óttalausu stúlkunni fyrir komuna!

Óhætt er að segja að koma Óttalausu stúlkunnar (e. Fearless girl) hingað til lands hafi vakið athygli. Styttan af óttalausu stúlkunni, eftir listakonuna Kristen Visbal, var upphaflega sett upp í New York af State Street Investment Management í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna árið 2017.

Lesa meira
15. október 2026

Arion banki á Arctic Circle

Arion banki tók þátt í Arctic Circle Assembly 2026 sem fór fram í Hörpu og Reykjavík EDITION dagana 8.-10. október. Í ár sóttu ráðstefnuna yfir 2.300 þátttakendur frá meira en 70 löndum og komu um 700 fyrirlesarar fram á yfir 200 málstofum.

Lesa meira
14. október 2026

Óttalausa stúlkan kemur til Íslands

Hin heimsþekkta stytta Óttalausa stúlkan (e. Fearless Girl), táknmynd seiglu og hugrekkis um allan heim, er á leið til Íslands. Tilefnið er sá árangur sem náðst hefur með Konur fjárfestum átaksverkefni Arion banka á undanförnum árum.  

Lesa meira