18.03.2010

Rúm­lega 200 manns á nám­skeiði hjá Arion banka um út­greiðsl­ur lífeyris­sparnaðar

Þátttaka á fjármálanámskeiði Arion banka um útgreiðslur lífeyrissparnaðar, sem var haldið í gær, fór fram úr björtustu vonum. Rúmlega 200 manns sóttu námskeiðið og komust færri að en vildu.

Margrét Jónsdóttir og Sólveig Hjaltadóttir frá Tryggingastofnun ríkisins kynntu þá þjónustu sem stofnunin býður lífeyrisþegum og hvaða reglur gilda um útgreiðslur lífeyris almannatrygginga. Í framhaldinu kynnti Arnaldur Loftsson, framkvæmdastjóri Frjálsa lífeyrissjóðsins, hvaða reglur gilda um útgreiðslu lífeyrissparnaðar, hvað sjóðfélagar þurfa að hafa í huga þegar útgreiðslualdur nálgast og þá útgreiðsluráðgjöf sem bankinn býður sjóðfélögum.

Fundargestir voru almennt mjög ánægðir með námskeiðið og fjöldi þeirra fékk ráðgjöf um lífeyrismál frá starfmönnum bankans strax eftir fundinn.

Annað námskeið um útgreiðslur lífeyrissparnaðar verður haldið 14. apríl nk. og hafa nú þegar um 60 manns skráð sig á það.

Alls hafa um 500 manns sótt fjármálanámskeið hjá Arion banka undanfarnar vikur.

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
20. október 2026

Við þökkum Óttalausu stúlkunni fyrir komuna!

Óhætt er að segja að koma Óttalausu stúlkunnar (e. Fearless girl) hingað til lands hafi vakið athygli. Styttan af óttalausu stúlkunni, eftir listakonuna Kristen Visbal, var upphaflega sett upp í New York af State Street Investment Management í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna árið 2017.

Lesa meira
15. október 2026

Arion banki á Arctic Circle

Arion banki tók þátt í Arctic Circle Assembly 2026 sem fór fram í Hörpu og Reykjavík EDITION dagana 8.-10. október. Í ár sóttu ráðstefnuna yfir 2.300 þátttakendur frá meira en 70 löndum og komu um 700 fyrirlesarar fram á yfir 200 málstofum.

Lesa meira
14. október 2026

Óttalausa stúlkan kemur til Íslands

Hin heimsþekkta stytta Óttalausa stúlkan (e. Fearless Girl), táknmynd seiglu og hugrekkis um allan heim, er á leið til Íslands. Tilefnið er sá árangur sem náðst hefur með Konur fjárfestum átaksverkefni Arion banka á undanförnum árum.  

Lesa meira