03.03.2010
Sameiginlegar verklagsreglur um úrlausn skuldavanda fyrirtækja
Samtök fjármálafyrirtækja (SFF) hafa unnið sameiginlegar verklagsreglur um úrlausn skuldavanda fyrirtækja í samræmi við ákvæði, um aðgerðir í þágu einstaklinga, heimila og fyrirtækja vegna banka- og gjaldeyrishrunsins. Þessar verklagsreglur hafa verið staðfestar af Fjármálaeftirlitinu. Gerður er fyrirvari um að Samkeppniseftirlitið veiti undanþágu fyrir slíkum samræmdum reglum fjármálafyrirtækja á grunni 15. gr. samkeppnislaga.
Verklagsreglurnar taka til viðskiptabanka, sparisjóða, eignaleiga og þeirra fjárfestingarbanka sem hafa stundað lánveitingar til fyrirtækja og mynda grunn að vinnubrögðum þeirra við endurskipulagningu atvinnulífsins. Lögin gera ráð fyrir að FME staðfesti að reglurnar séu í samræmi við lög og fela jafnframt sérstakri eftirlitsnefnd að tryggja að þau fjármálafyrirtæki sem undir þær heyra framfylgi slíkum samræmdum reglum. Sú eftirlitsnefnd hefur þegar tekið til starfa.