27.04.2009
Sameinað útibú Sparisjóðs Mýrasýslu og Nýja Kaupþings opnar í dag
Sameinað útibú Sparisjóðs Mýrasýslu og Nýja Kaupþings var opnað að Digranesgötu 2 í Borgarnesi í morgun, mánudaginn 27. apríl. Útibúi Nýja Kaupþings við Brúartorg 4 hefur verið lokað. Útibúið verður eftir sameininguna annað af tveimur stærstu útibúum Nýja Kaupþings.
Þetta tryggir viðskiptavinum SPM óbreytta þjónustu að auki geta þeir nú sótt þjónustu á 30 stöðum á landinu hjá Nýja Kaupþingi. Skrifstofu SPM í Borgartúni verður lokað.
Bankanúmer breytast úr 1103 og 1104 í 354 og 355. Debet- og kreditkort verða framvegis gefin út í nafni Kaupþings, vaxtataflan verður sameinuð og þjónustuframboð og kjör löguð að starfsemi Nýja Kaupþings.
Útibússtjóri sameinaðs útibús er Bernhard Þór Bernhardsson, Skúli G. Ingvarsson er aðstoðarútibússtjóri, Steinunn Ásta Guðmundsdóttir er þjónustustjóri og Magnús Þorkelsson er féhirðir.
Breytingin er gerð í kjölfar þess að stærstu lánardrottnar Sparisjóðs Mýrasýslu samþykktu tillögu að fjárhagslegri endurskipulagningu SPM 27. mars síðastliðinn. SPM hafði í kjölfarið frumkvæði að því að ganga til samninga við Nýja Kaupþing. Það var gert til að tryggja áframhaldandi þjónustu við viðskiptavini sjóðsins og með hagsmuni samfélagsins í Borgarfirði í huga.
Fyrrum starfsmenn SPM og starfsmenn útibús Nýja Kaupþings taka vel á móti viðskiptavinum í nýju sameinuðu útibúi.