23.03.2011
Sameinaðir kraftar í nýju útibúi Arion banka á Höfða
Í dag opnuðum við nýtt útibú á Bíldshöfða 20. Útibúið verður eitt það stærsta í útibúaneti Arion banka, sérhannað með þarfir viðskiptavina í huga útfrá áherslum bankans í ráðgjöf og þjónustu.
Í hinu nýja útibúi verður lögð áhersla á að veita fyrirtækjum og einstaklingum sem þurfa fjölbreyttar og sérsniðnar lausnir, góða alhliða bankaþjónustu. Þar starfar öflugt og reynslumikið starfsfólk sem áður starfaði í útibúum bankans að Suðurlandsbraut, í Árbæ og í Grafarvogi. Starfsmenn útibúsins eru alls 38 talsins og útibússtjóri er Ásgerður H. Sveinsdóttir.
Ein af þeim nýjungum sem boðið verður upp á í hinu nýja útibúi er þjónusta sérhæfðra fjármálaráðgjafa sem veita munu viðskiptavinum, jafnt fyrirtækjum sem og einstaklingum, víðtæka þjónustu og ráðgjöf á sviði fjármála.
Aðstaðan í Höfðaútibúi er öll hin besta og næg bílastæði eru á staðnum.
Við opnun útibúsins að Bíldshöfða í morgun.
F.v. Hermann Björnsson, framkvæmdastjóri viðskiptabankasviðs, Ragnheiður Jóhannesdóttir, aðstoðarútibússtjóri, Arnfríður Hjaltadóttir þjónustustjóri, Fannar Jónasson, viðskiptastjóri fyrirtækja og Ásgerður H. Sveinsdóttir, útibússtjóri hins nýja útibús.
Ásgerður H. Sveinsdóttir, útibússtjóri og Höskuldur H. Ólafsson bankastjóri.