30.09.2009
Sameining útibúa hjá Nýja Kaupþingi
Ákveðið hefur verið að sameina útibú Nýja Kaupþings banka hf. í Mjódd og afgreiðsluna í Hamraborg við útibú bankans í Turninum í Kópavogi. Sameinað útibú tekur til starfa mánudaginn 12 október n.k. Markmiðið með sameiningunni er að mynda stærri og öflugri einingu sem þjónað getur viðskiptavininum með enn betri hætti en áður.
Starfsfólk útibúanna leggur áherslu á að sameiningin hafi sem minnstu óþægindi í för með sér fyrir viðskiptavini. Bankanúmer haldast óbreytt sem og númer á debet-, tékka- og sparnaðarreikningum. Útibú Nýja Kaupþings á höfuðborgarsvæðinu verða alls tíu eftir breytinguna.
Fjöldi starfsmanna í sameinuðu útibúi í Turninum í Kópavogi verður 26. Útibússtjóri er Gunnar Jóakimsson.