30.05.2013

Sam­keppn­is­for­skot Ís­lands sem stað­setning fyrir gagna­ver

Nýlega kom út greiningarskýrsla sem er unnin af BroadGroup ráðgjafafyrirtækinu um kosti Íslands þegar það kemur að staðsetningu gagnavera. Samkvæmt skýrslu BroadGroup er Ísland einkar ákjósanlegur staður fyrir gagnaver og hefur landið að þeirra mati forskot á önnur lönd sem standa framarlega í þessum efnum, m.a. vegna hreinnar og ódýrrar orku.

Arion banki hefur á undanförnum árum stutt ötullega við framgang gagnaversiðnaðarins hér á landi og innan bankans er að finna mikla þekkingu á honum.

Áhugasamir geta fengið skýrslu BroadGroup með því að skrá sig hér.

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
20. október 2026

Við þökkum Óttalausu stúlkunni fyrir komuna!

Óhætt er að segja að koma Óttalausu stúlkunnar (e. Fearless girl) hingað til lands hafi vakið athygli. Styttan af óttalausu stúlkunni, eftir listakonuna Kristen Visbal, var upphaflega sett upp í New York af State Street Investment Management í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna árið 2017.

Lesa meira
15. október 2026

Arion banki á Arctic Circle

Arion banki tók þátt í Arctic Circle Assembly 2026 sem fór fram í Hörpu og Reykjavík EDITION dagana 8.-10. október. Í ár sóttu ráðstefnuna yfir 2.300 þátttakendur frá meira en 70 löndum og komu um 700 fyrirlesarar fram á yfir 200 málstofum.

Lesa meira
14. október 2026

Óttalausa stúlkan kemur til Íslands

Hin heimsþekkta stytta Óttalausa stúlkan (e. Fearless Girl), táknmynd seiglu og hugrekkis um allan heim, er á leið til Íslands. Tilefnið er sá árangur sem náðst hefur með Konur fjárfestum átaksverkefni Arion banka á undanförnum árum.  

Lesa meira