22.11.2012
Samkomulag um sértæka skuldaaðlögun rennur út um áramótin
Við vekjum athygli á því að samkomulag um sértæka skuldaaðlögun fellur niður í árslok 2012.
Greiðsluerfiðleikaúrræðið sértæk skuldaaðlögun felur í sér að skuldir og eignir einstaklings/hjóna í greiðsluvanda eru lagaðar að greiðslugetu. Sjá nánar um sértæka skuldaaðlögun hér.
Viðskiptavinir Arion banka sem telja sig í greiðsluvanda geta áfram leitað ráðgjafar og úrlausnar í útibúum bankans. Einnig verður áfram hægt að sækja um aðstoð á vef bankans.