20.01.2011

Sam­komulag um upp­gjör skulda Þor­steins M. Jóns­son­ar við Arion banka

Arion banki hefur gert samkomulag við Þorstein M. Jónsson og félög sem tengjast honum um uppgjör skulda. Meðal þessara félaga er Vífilfell hf. sem fer undir nýtt eignarhald. Gerir samkomulagið ráð fyrir fullum endurheimtum Arion banka.

Grundvöllur samkomulagsins er sala eignarhaldsfélaga í eigu Þorsteins, Sólstafa og Neanu, á öllu hlutafé í Vífilfelli. Nýr eigandi Vífilfells er spænski drykkjarvöruframleiðandinn Cobega. Kaupverð er trúnaðarmál en greiðslan kemur að öllu leyti til lækkunar á skuldum eignarhaldsfélaga Þorsteins við Arion banka. Búið er að skrifa undir kaupsamning en eftir stendur að ganga frá ákveðnum fyrirvörum sem tilgreindir eru í kaupsamningi. Reiknað er með að því verði lokið í febrúar.

Arion banki mun einnig fá í sinn hlut væntanlegt söluandvirði og aðrar greiðslur vegna hlutar Vífilfells í hollenska drykkjarvöruframleiðandanum Refresco. Þar til Refresco hefur verið selt mun Þorsteinn sitja í stjórn félagsins.

Fyrir fjárhagslega endurskipulagningu voru heildarskuldir Sólstafa og Neanu við Arion banka um 6,4 milljarðar króna og heildarskuldir Vífilfells við bankann voru um 4,5 milljarðar króna. Samkomulagið nú felur í sér fullnaðaruppgjör á skuldum Sólstafa og Neanu við Arion banka og að heildarskuldir Vífilfells verði um 2 milljarðar króna og þar af 1,4 milljarðar við Arion banka.

Þorsteinn á einnig hlut í fjárfestingafélaginu Materia Invest og er í persónulegri ábyrgð fyrir 240 milljónum af skuldum félagsins við Arion banka. Hluti af samkomulaginu nú er uppgjör þessara persónulegu ábyrgða.

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
20. október 2026

Við þökkum Óttalausu stúlkunni fyrir komuna!

Óhætt er að segja að koma Óttalausu stúlkunnar (e. Fearless girl) hingað til lands hafi vakið athygli. Styttan af óttalausu stúlkunni, eftir listakonuna Kristen Visbal, var upphaflega sett upp í New York af State Street Investment Management í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna árið 2017.

Lesa meira
15. október 2026

Arion banki á Arctic Circle

Arion banki tók þátt í Arctic Circle Assembly 2026 sem fór fram í Hörpu og Reykjavík EDITION dagana 8.-10. október. Í ár sóttu ráðstefnuna yfir 2.300 þátttakendur frá meira en 70 löndum og komu um 700 fyrirlesarar fram á yfir 200 málstofum.

Lesa meira
14. október 2026

Óttalausa stúlkan kemur til Íslands

Hin heimsþekkta stytta Óttalausa stúlkan (e. Fearless Girl), táknmynd seiglu og hugrekkis um allan heim, er á leið til Íslands. Tilefnið er sá árangur sem náðst hefur með Konur fjárfestum átaksverkefni Arion banka á undanförnum árum.  

Lesa meira