03.09.2009
Samningar ríkisins og skilanefndar Kaupþings undirritaðir
Enn einum áfanga í endurreisn Nýja Kaupþings banka hf. var náð í dag þegar bankinn, ríkið og skilanefnd Kaupþings undirrituðu samninga sem fela m.a. í sér ákvæði um endurfjármögnun bankans og uppgjör milli gamla og nýja bankans.
Í samningunum kemur enn fremur fram að skilanefnd fyrir hönd kröfuhafa gefst kostur á að eignast um 87% hlutafjár í Nýja Kaupþingi á móti ríkissjóði. Skilanefndin hefur frest til 31. október til að taka ákvörðun. Samningarnir eru háðir fyrirvara um niðurstöðu áreiðanleikakönnunar á Nýja Kaupþingi og samþykki Fjármálaeftirlitsins og Samkeppniseftirlitsins.
Undirritun samningana í dag byggir á rammasamkomulagi ríkisins og skilanefndar Kaupþings sem kynnt var þann 20. júlí síðastliðinn.
Nýja Kaupþing mun hér eftir sem hingað til heyra að öllu leyti undir íslensk lög og íslenskar eftirlitsstofnanir. Innstæðutrygging íslenskra stjórnvalda nær jafnt til Nýja Kaupþings sem og annarra innlendra innlánastofnanna.
Finnur Sveinbjörnsson bankastjóri Nýja Kaupþings:
,,Endurfjármögnun bankans og samningarnir við skilanefndina eru mikilvæg skref í markvissri endurreisn bankans til hagsbóta fyrir viðskiptavini hans og samfélagið í heild."
Breytingar eiga sér stað í stjórn bankans í kjölfar undirskriftarinnar. Skilanefnd Kaupþings hefur tilnefnt tvo stjórnarmenn sem munu frá deginum í dag hafa sama atkvæðisrétt í stjórn Nýja Kaupþings og fjórir stjórnarmenn tilnefndir af ríkinu. Ný stjórn mun leiða starf bankans þar til endanlegt eignarhald liggur fyrir.
Í nýrri stjórn bankans sitja: Erna Bjarnadóttir nýr stjórnarformaður, Helga Jónsdóttir, Drífa Sigfússdóttir, Jónína Sanders, Jóhannes Rúnar Jóhannsson og Theodór S. Sigurbergsson.
Úr stjórn hverfa Hulda Dóra Styrmisdóttir stjórnarformaður og Auður Finnbogadóttir.
Hulda Dóra Styrmisdóttir fyrrverandi stjórnarformaður Nýja Kaupþings:
,,Við Auður Finnbogadóttir hverfum nú til annarra starfa. Fjármögnun bankans af hálfu ríkisins lauk 14. ágúst og samningar liggja fyrir um uppgjör á milli gamla og nýja bankans. Á þessum tímamótum teljum við lokið því verkefni sem okkur var falið fyrir hönd ríkisins. Við óskum bankanum og nýrri stjórn góðs gengis og teljum fullvíst að nýr kafli sé að hefjast í sögu bankans."